(21.12.08):
#1773
Margar sögur fara af dugnaði Símans við að ná
aurunum af viðskiptavinum sínum. Nýverið komst ég
að raun um að ofan á allt annað rekur Síminn
langdýrustu
vídeóleigu landsins.
Við höfum haft internetáskrift
hjá Símanum í rúman áratug.og fyrir
nokkrum árum var bætt við því sem þá
hét Skjábíó / Sjónvarp Símans.
Við höfum nú lítið notað möguleikann,
en prófuðum í nóvember að taka eina bíómynd
á leigu. Myndin kostaði kr. 690 – eins og margsinnis var ítrekað
og staðfest þegar verið var að velja hana.
Við erum með reikninga vegna símanúmers
og internetáskriftar hjá Símanum sjálfkrafa
skuldfærða af kreditkortum og höfðum því
engar áhyggjur af þessu meir.
Okkur duttu þó allar dauðar
lýs úr höfði þegar reikningur kom inn um lúguna
15. desember. Hann var ekki frá Símanum – sem við gerðum
samning við um sjónvarpsáskriftina – heldur frá
einhverju öðru fyrirtæki sem heitir Skjárinn. Reikningurinn
var fyrir leigu á bíómynd í Skjábíó
og hljóðaði upp á 940 kr., þar af eitthvað
sem heitir útskriftargjald upp á 250 kr.
Þótt þetta sé greinilega
eitthvað annað fyrirtæki en Síminn er þjónustusími
Símans gefinn upp fyrir þá sem vilja gera athugasemdir
við reikninga. Þar var mér sagt að Sljárinn
væri bara allt annað fyrirtæki en Síminn – jafnvel
þótt Síminn ætti Skjáinn með húð
og hári. Síminn gæti þess vegna ekki rukkað
sína viðskiptavini fyrir úttektir hjá Skjánum!!!
Mér var ekki sagt hvernig Síminn
gat framselt viðskiptasamning við okkur um Sjónvarp Símans
til Skjábíós, án þess að spyrja okkur
leyfis. Það er mál fyrir Póst- og fjarskiptastofnun
að athuga seinna meir.
Það er erfitt að átta sig
á öllum þversögnunum í dæminu og hvernig
þessi fyrirtæki geta verið með sameiginleg afnot af
símalínu, internettengingu, viðskiptaupplýsingum,
starfsmönnum og eflaust fleiru, en geta samt ekki skuldfært
einfalda úttekt skv. áður gerðum samningi.
940 kr. eru eflaust hæsta gjald sem nokkur
vídeóleiga í heimi tekur fyrir gamla bíómynd.
Ég hef tilkynnt Símanum að ég muni greiða
690 kr. fyrir þessa bíómynd en ekki krónu meir.
250 krónurnar geta þeir sótt með innheimtuaðgerðum.
Hvað græddi Síminn á
þessu? Jú, við á þessu heimili munum aldrei
framar leigja mynd af þessari okurbúllu. Við munum líka
hlusta af athygli næst þegar sölumenn hinna síma-
og internetfyrirtækjanna hringja í okkur, í staðinn
fyrir að hlusta ekki og kveðja kurteislega í byrjun símtals.
Ívar Pétur Guðnason
#1772
Var að koma úr Smáralind,,og ætlaði
að fá mér Bragðaref í ísbúðinni
þar,sem ég fæ mér annað slagið,síðast
þegar ég keypti mér lítinn Bragðaref kostaði
hann 450.kr.fyrr í haust nú kastar hann 790 .Þetta
er 76% hækkun ,,og ekki er þetta innflutt, alíslenst,,,a.m.k.obbinn
af þessu litla nammi sem fer í ísinn,sem er íslenskur
líka,hreint og klárt okur,þarf varla að taka fram
að ég hafði ekki geð á að kaupa mér
ís þarna.
Gísli Gylfason
#1771
Konan keypti jólakrans með lýsingu á 1.500 kr.
fyrir nokkrum jólum síðan. Núna fyrir jólin
gafst peran upp og var því ekki um annað að ræða
en að kaupa nýja peru. Ég fór í BYKO
og keypti þar peru en þurfti að reiða af hendi 1.896
kr. fyrir hana. Ég strögglaði aðeins við aðstoðarmanninn
í lampadeildinni, en hann reyndi að fullvissa mig um að
álagningin væri í algjöru lágmarki og gott
ef verðið var ekki frá því fyrir bankahrun!
Ég stóðst ekki mátið þegar heim var
komið og athugaði verð á Ebay, þar var 1 stk.
verðlagt á 1 pund og einnig var boðinn pakki með 10
stk. á 3,99 pund. Það skal tekið fram að um fast
verð er að ræða, en póskostnaður er ekki innifalinn
í þessum verðum, en þetta eru þó smásöluverð
en ekki innkaupsverð frá birgjum (heildsöluverð) sem
ætla má að sé einhverri álagningu lægra.
Ætti kannski frekar að skilgreina OKRIÐ
í BYKO sem ÞJÓFNAÐ?
Egill H Bjarnason
ps. Væri ekki betra að vera í
Evrópubandalaginu og geta pantað eitt og annað frá
aðildarlöndunum án þess að þurfa að
borga toll, tollafgreiðslugjald og virðisaukaskatt ofan á
verðið þegar varan berst hingað.
#1770
Það er með endemum hvað er okrað á skrifstofuvörum
hjá
Pennanum/Eymundsson. Nefna má sem
dæmi Bantex skilrúmamöppur
(harmonikkumöppur). Ein slík, með
12 hólfum, kostar í dag 3.340 kr.
Gat ekki fundið verð á alveg sömu
möppu erlendis, en sambærilegar möppur
(og jafnvel betri) kosta t.d. á Amazon.co.uk
5.67 pund, eða 1.034 kr á
gengi dagsins í dag.
Það er eitthvað mikið að
þegar vara kostar þrefalt meira á Íslandi en
í
öðrum löndum. Kann þetta
fólk ekki að reka verslun?
Ásgeir
#1769
Ég á 9 ára dóttur sem þarf að fá
gleraugu og sagði
augnlæknirinn okkur að Tryggingastofnun
ríkisins greiddi fyrir þau. Við
fórum af stað til að skoða
og byrjuðum á að fara í Gleraugnasmiðjuna.
Þar
fann dóttir mín falleg gleraugu
og ákváðum við að taka þau, þá
er okkur
sagt að Tryggingstofnun ríkisins greiði
7000 krónur, hefur það örugglega
dugað einhvern tímann fyrir gleraugum
en ekki í dag. Þegar búið var að
reikna 7.000 krónurnar inn í verðið
áttum við að greiða 25.000 krónur, ég
átti ekki til orð, þvílíkt
OKUR. Við hættum við að kaupa gleraugun og
ákváðum að kanna verðið
annarsstaðar. Við fórum í verslunina Augað en
þar
var verðið svipað og í Gleraugnasmiðjunni.
Þá sagði strákurinn minn
mér að það væri tilboð í Prooptik
gleraugnaverslununum. Við fórum þangað
og viti menn, þar voru
augnumgjörðir fríar fyrir börn
og þegar 7.000 krónurnar voru reiknaðar inn
í verðið, þurftum við
aðeins að borga 4.900 krónur fyrir gleraugun. Við
vorum mjög ánægð, dóttir
mín með gleraugun og ég með VERÐIÐ og þjónustuna.
Sólveig G. Jörgensdóttir
#1768 Ég hef staðið
í smá stappi við Kaupþing undanfarið
vegna skuldbreytingar á láni. Ég hafði ekki spáð
mikið í það en þegar ég fór að
skoða seðlana þá eru þeir með tilkynningargjald
upp á 730 kr. Ekki seðilgjald, engin greiðsluseðill
sendur - tilkynningargjald. Umboðsmaður alþingi hefur gert
athugasemdir við þessa innheimtu yfir höfuð - þótt
hún sé yfirleitt 50 kr.! Hvað þá þegar
hún er 730 krónur?!
Ég hef krafist þess (prinsipmál)
að þeir lagi þetta þegar láninu skuldbreytt.
Og þetta eru svörin:
Varðandi tilkynningar- og greiðslugjaldið
verður það samkv. gjaldskrá Kaupþings banka
hf., sem er nú Kr. 510,- Ef lánið er með sjálfvirkri
skuldfærslu lækkað það í Kr. 225,- og
ef ekki er sendur út greiðsluseðill lækkað það
um Kr. 75,- til viðbótar og getur því lægst
orðið miðað við núverandi gjaldskrá Kr.
150,-
Glæpamenn! Fyrir utan að þetta
er greinilega gjaldskrá gamla Kaupþings sem var glæpaveldi
að maður myndi halda að nú væri lag að breyta
henni í takt við breytt eignarhald og breyttar þjóðfélagsaðstæður.
HBB.
#1767
Látið Húsasmiðjuna ekki plata ykkur. 50% afsláttur
af jólaskrauti
endaði sem tæp 5% af heildarinnkaupum
í mínu tilfelli. Allt er þetta
leikur að orðum hjá þeim.
Jólaseríur eru t.d. undanskildar
þessum afslætti... þrátt fyrir að
teljast jólaskraut. Ástæðuna
segja þeir vera þá að öðruvísi treysti
þeir sér ekki til að bjóða
"sama verð og í fyrra".
Mér er nokkuð sama um ódýrustu
seríurnar þeirra þannig séð. Marglit 50
ljósa sería kostar 589kr,
en dýrari seríurnar hjá þeim eru þannig
MUN
dýrari í ár en hefðu
verið!
120 ljósa útisería kostar
því 2239kr og inniseríur í barnaherbergi
kosta nú 1999kr og er enginn afsláttur
veittur þar.
Já og svo flokka þeir allt í
jólaskraut eða "jólavöru" og það er ekki
afsláttur af jólavörunni þeirra.
Þessir skilmálar eru hvergi auglýstir
eða tilkynntir í verslun, heldur eitthvað
sem grandalausir kúnnar
komast fyrst að á kassanum þegar
á að fara að greiða fyrir vöruna.
Svo nokkur orð um Elko:
Útvarps-Vekjaraklukka sem varpar tímanum
á vegg/loft kostaði rúm
4þúsund fyrir síðustu
jól. Núna auglýsir Elko sömu tegund á
um
10þúsund. Eðlileg hækkun??
Almennt séð hefur maður tekið
eftir þvi í mörgum verslunum, að
verðmerkingar á hillum og vöru
er ábótavant. Einnig er eitthvað um það
að varan sé einungis verðmerkt
á hillu, -enda auðveldara að hringla
með vöruverð þannig, -skipta
bara unm "hilluverð" og þurfa þá ekki að
endurverðmerka allt heila klabbið!
Elínborg
#1766
Föstud. 19/12 ætlaði ég að kaupa 3 rafhlöður
í lítið handljós hjá BYKO í
Kauptúni. Þar var boðið upp á 2 stk.
á spjaldi á kr. 1.632, eða 816 kr. stk. Ég
hefði því þurft að kaupa 2 spjöld, eða
4 stk. á samtals 3.264 kr. Reyndar höfðu þessi
batterí hækkað um ca. 10% frá því
daginn áður. Mér fannst þetta nokkuð
dýrt, svo ég gerði mér ferð í Rafborg
við Sundaborg 7, þar sem rafhlöður sömu gerðar
voru seldar í stykkjatali á 176 kr stk.
Það skal tekið fram, að tegundin
í BYKO var Duracell LR44 alcaline, en í Rafborg Panasonic
LR44 alcaline, sem eru alveg sambærileg þótt sitthvort
vörumerkið sé. Þarna er sem sagt BYKO að
selja alveg sambærilega vöru 464% dýrar en Rafborg.
Reyndar hefði ég svo þurft að
borga 3.264 kr. fyrir 4 stk í BYKO þótt ég þyrfti
ekki nema 3, í stað þeirra 528 kr. sem ég borgaði
fyrir 3 stk. í Rafborg.
OKUR er eiginlega alltof vægt orð um
svona verðlagningu, réttara væri að kalla þetta
RÁN. Því miður hefur BYKO, sem fyrir margt
löngu var í fararbroddi um lágt verð á verkfærum
og byggingavörum, breyst í hreinræktaða okurbúllu
á þessu sviði.
Því er ráðlegt að
leita annað ef menn vilja ekki láta ræna sig.
Því má svo bæta við
að þeir sem eru með BYKO kort, sem eiga að gefa 10% afslátt
á öðru en tilboðsvörum, ættu að gæta
þess að fá réttan afslátt því
í síðustu tvö skiptin sem ég verslaði
þar, var afslátturinn ekki nema um 7,1%. Það
er því ekki aðeins okrað á kúnnunum,
heldur einnig beinlínis reynt að svindla á þeim.
Sverrir
#1765
2 kg humar frá Hornafirði í Nettó: Kr. 2.990,
eða 1.500 kr. kílóið. Við
erum að tala um toppvöru, þ.e.
stóra og lítt gallaða skelbrothala, ekki
eitthvað súpudrasl. Ef þetta
eru ekki matarkaup ársins, þá skal ég hundur
heita - Allir í Mjódd!
Óskar P. Einarsson.
#1764
Ég fór í Bóksölu stúdenta í
gær og mér til ánægju var þar hægt
að kaupa heimsbókmenntir á gjafaverði. Að vísu
var þar um að ræða bækur ritaðar á
enskri tungu en engu síður afar ánægjulegt að
geta splæst í Pollyanna á 350 kall.
Sævar
#1763
Fimm mánaða sonur okkur hjóna þarf þessa
dagana að drekka sérstaka þurrmjólk sem
á að ganga úr skugga um hvort hann sé haldinn
einhverju óþoli. Þessi mjólk er rúmlega
helmingi dýrari en venjuleg þurrmjólk og er það
kannski eðlilegasti hlutur í heimi sökum eðli vörunnar.
Þessi sérstaka þurrmjólk heitir Nutramigen. Þann
15. des síðastliðinn keyptum við skammt af þessu
dóti á 2886 krónur í Lyf og Heilsu. Í
dag 18. des kostar þessi þurrmjólk einhverra hluta vegna
4066 krónur, hefur hækkað um 1220 krónur eða
tæp 43%. Þetta verð virðist vera svipað verð
og annars staða en í Lyfju kostar hún 4088 krónur.
Það er ekki eins og við eigum einhvað val. Ekki getum
við keypt aðra tegund. Við hættum heldur ekki að
kaupa þetta. Kostnaðaraukinn á mánuði hjá
okkur nemur rúmlega 12000 krónum. Niðurgreiðsla fæst
frá hinu opinbera í svona tilfellum sem eitthvað vegur
upp á móti þessu en hækkunin getur ekki talist
eðlileg og greinilega ekki verið að gæta hófs
í verðhækkunum.
Eyjólfur og Elín
(Nb. Ath verðin annars staðar, t.d.
í Lyfjaveri. Lyfja og Lyf og heilsa hafa margsinnis komið hér
upp í okurdæmum).
(+ Langar að benda Eyjólfi og Elínu
á að taka nótur fyrir öllu þessu og
hafa samband við Tryggingastofnun (sjá
nánar http://www.tr.is/foreldrar-og-born/Lyf/naering-og-serfaedi/)
. Það eru allar líkur á því
að þau geti sótt um næringastyrk og þá
væntanlega fengið endrugreiðslu
að hluta miðað við ákveðið hámark
sem
tilgreint er í lögum. Læknirinn
þeirra hefði reyndar átt að hafa vit
á því að benda þeim
á þetta ásamt því að skrifa út
vottorð ef að um
óþol er að ræða.
Sjálfur þarf ég að kaupa
tilbúna þurrmjólk (s.s. ekki duftið). Alveg
þangað til í ágúst/september
var krukkan (100ml) ódýrast á 122kr, en
hækkaði svo á einum degi í
229kr - vel að merkja þá er ennþá verið
að
selja mjólk úr sömu sendingu
sem rennur út í janúar 2009. Mér
reiknaðist sem svo að mjólkurreikningurinn
hefði hækkað úr tæpum 43þ
upp í 85þ á mánuði
(fengum reyndar næringastyrk upp á heilar 13200).
Það verður svo fróðlegt
að sjá hvort þessi mjólk fáist í
enda janúar
þegar þessi sending verður útrunnin.
Óskar nafnleyndar)
#1762
Keypti blek í Canon bleksprautuprentara (8) í Tölvulistanum
11. apríl og þá kostaði hylkið 1.690 og fannst
mér það dýrt enda sex hylki í prentaranum.
Keypti í gær tvö hylki áfyllingu á sama
stað. Nú kostar hylkið 3.290 kr. Þetta gera tæp
20.000 fyrir öll sex hylkin! 95% hækkun á hálfu
ári. Kíkti á ELKO.is þar kostar hylkið 1.995.
Hefði því sparað 2.590 með að kíkja
fyrst á netið. Ætla að reyna að skila þessu.
Þetta er okur!
JónasJ
#1761
Dóttir mín fékk Barbíhús í afmælisgjöf
frá frænku sinni í maí síðastliðinn
og kostaði húsið frænkuna þá 3990 kr.
í Hagkaupum. Nú kostar þetta sama hús
tæpar 8200 kr í Hagkaupum og tæpar 13000 kr. í
Toys´r´us.
Í BYKO fæst þetta sama Barbíhús á
6780 kr. Ég mun aldrei versla í okurbúllunni
Toys´r´us.
Bryndís Lára Torfadóttir
#1760
Í tilefni jólanna fór ég að athuga með
vídeóvélin, og viti menn batteríin voru bæði
ónýt, þar sem að þetta er Sony vél,
hringdi ég í Sony Center til að athuga með
verð á batteríum, 13.900 stk , ég hváði,
og var viss um að drengurinn hefði farið línuvillt í
tölvunni, nei nei þetta reyndist rétt 13.900. Ég
fór á ebay, og rakst þar á batterí 2
stk í pakka á 12 usd og svo voru 7.80 usd í sendingarkostnað,
miðað við gengið í dag að þá eru
það 2415 kr svo borgaði ég um 1200 kr gjöld og
skatta þannig að 2415 + 1200 = 3615 / 2 = 1807 kr stykkið
Kristján
#1759
Ég átti leið í Smáralindina þar sem
ég sá Mokkafrakka í Herragarðinum á
"aðeins" 199980 krónur. Afsláttarverðið á
þessum frakka var 159984 krónur. Mér finnst bæði
verðin vera frekar langt frá því að vera í
nokkrum tengslum við raunveruleikann og skiptir þá engu
hvaða merki er á þessum frakka.
Væri ég alveg til í að
fá útskýringar hjá yfirfólki búðarinnar
á þessu verði. Læt mynd fylgja af öðru
setti sem mér finnst einnig vera á þvílíku
okurverði að mér og fleirum sem ég hef sagt frá
blöskrar.
Nafnlaus
(Nb. Akkúrat það sem manni
vantar í hávaðakreppu er 20% afsláttur í
Herragarðinum og Hugo Boss, það segir sig sjálft.)
#1758
Var staddur í Pennanum Eymundsson á Akureyri í
dag að skoða jólagjafir. Verðlagið á mörgum
vörum í búðinni er í hróplegu ósamræmi
við aðrar búðir en eitt fannst mér standa upp
úr. EIN rúlla af jólaklósettpappír á
1.295 krónur! Ef fólk hefur efni á því
að eyða 1.295 krónum í eina klósettpappírsrúllu
þá getur það alveg eins skeint sér með
500 köllum. Þvílíkt okur!
Neytandi
#1757
Ég keypti mér kápu fyrir 3 vikum síðan
í Gallery í Keflavík á 13.900 og var
bara nokkuð sátt við það
verð, enda búin að leita mér lengi að kápu
sem mig
langaði mikið í og kostaði
ekki yfir 20.000 en svo fór ég í Debenhams
og sá þar
ALVEG eins kápu og ákvað að
gamni mínu að ath með verðið á henni og fékk
ég
vægt sjokk....Hún kostaði 22.990.
Tetta kalla ég okur. Svo í gær keypi ég líka
í Gallery í Keflavík kjól
á dóttur mína og kostaði hann 8.000. Svo í
dag fór ég
í Vera Moda í Kringlunni
og þar var nákvæmlega eins kjóll á 15.000.
Þetta
finnst mér vera of mikill munur.
Gudda
#1756
Oft er þörf en nú er nauðsyn. Ég bara verð
að koma þessu hér að.
Málið er það að ég
var búinn að ákveða að kaupa íslenska
orðabók til
að gefa í jólagjöf.
Fór í Eymundsson í
Kringlunni í gær og þar kostar hún 14.990kr,
ég
hinsvegar fór í bóksölu
stútenta í dag sunnudag og keypti hana þar á
8491kr
Já þetta er alveg sama bókin,
í einu bindi og eftir Mörð Árnason.
Verðmunur uppá 6499krónur hvorki
meira né minna.
Fullt verð á bókinni hjá
bóksölu stúdenta er 9900kr en hún er nú
með
15% afslætti sem gefur fyrrgreint verð.
Ívar
(19.12.08):
#1755
Ég ætlaði að gefa
manninum mínum gönguskó í jólagjöf.
Hann þræddi allar búðir bæjarins í
leit að skóm á skikkanlegu verði sem pössuðu
vel og fann loks Salomon skó sem honum leist vel á í
Intersport
Lindum
á 22.990 kr á sunnudagskvöldi. Ég fór
svo þangað að kaupa skóna á miðvikudegi
og viti menn, þá var búið að breyta verðinu
í 29.990 kr! Ég bað auðvitað um skýringu
á þessari verðbreytingu en krakkarnir á gólfinu
gátu ekki gefið nein svör. Þá bað ég
um að tala við verslunarstjórann og eftir nokkra bið
kom hann. Samkvæmt honum var skýringin sú að það
hefði komið ný sending á þessu verði (virðist
vera gegnumgangandi afsökun, miðað við síðuna
þína) og styrking krónunnar upp á síðkastið
skipti engu máli. Það þarf væntanlega ekki
að taka það fram að ég gekk út án
þess að kaupa skóna.
Elísabet
#1754
Bókin Jólin koma, jólakvæði
Jóhannesar úr Kötlum, kostaði kr. 500
fyrir jólin 2007 í Bókabúðinni
Hamraborg, Kópavogi. Nú kostar hún þar
kr. 990.
Gunnsteinn Ólafsson
#1753
Ég eignaðist barn í
haust og ætlaði að kaupa Tripp Trapp matarstól
handa því nú um jólin.
Þeir hafa lengi verið vinsælir enda "vaxa" þeir
með barninu. Stóllinn kostar 29.900
í barnaversluninni Fífu í sígildu
litunum. 32.800 ef maður vill gerast svo
djarfur að fá sér stól í
nýjum lit. Epal er verslun sem hefur nú
ekki hingað til verið þekkt
fyrir hagstæð verð enda eru þar
seldar hönnunarvörur sem eru oft
dýrari en aðrar. Þessi nákvæmlega
sami stóll kostar þar 26.500 kr og
þar skiptir engu máli hvort maður
velur sér sígildan lit eða nýjan.
Sem sagt, 6300 krónu munur á nákvæmlega
sömu vörunni.
Ýmsa aukahluti er hægt að fá
með stólnum sem eru hreinlega
nauðsynlegir þegar maður er með
ungabarn, eins og t.d ungbarnasæti og
sætisbólstur.
Ungbarnasætið kostar 6690 í Fífu
en 5900 í Epal.
Sætisbólstur kostar 6900 í
Fífu en 5450 í Epal.
Það er svínslega okrað á
barnavörum og greinilega ekki síst í
sérvöruverslunum fyrir börn.
Ég ráðlegg þeim sem ætla að fá
sér Tripp
Trapp að fara beint í Epal sem eru
klárlega ódýrastir.
Brynja Björk Garðarsdóttir
#1752
Ég má til með að
vekja athygli á óheyrilegum verðmun á "Dönskum
brjóstdropum." ( 100 ml )
Í Lyfjaveri Suðurlandsbraut kosta
þeir 570 kr. en í Lyf og Heilsu Austurveri kosta þeir
999 kr.
Þetta er vægast sagt þjófnaður.
Ásdís
#1751
Ég hef alltaf litið á ELKO sem ódýra
búð og Húsasmiðjuna/Blómaval sem okurbúllu.
Nú í dag sá ég að þetta var ekki
alveg rétt skilgreining hjá mér.
Rjómasprautur notast við lítil
gashylki og sætir það litlum tíðindum í
sjálfu sér. Verðmunurinn er hinsvegar alveg ótrúlegur:
iSi 10 stk. pakki kostar nú í dag
í ELKO kr. 995, þ.e. rétt tæpar 100 kr. stk.
iSi 50 stk. pakki kostar nú í dag
í Húsasmiðjunni/Blómavali kr. 999, þ.e.
tæpar 20 kr. stk.!!
ELKO-okur er greinilega nýyrði sem
maður þarf að fara að temja sér ...
Ívar Pétur Guðnason
(18.12.08):
#1750
Ég er fátækur námsmaður í HÍ
og þá sjaldan sem maður leggur í að fara fínt
út að borða endar það yfirleitt í samvikubiti
yfir peningasóun. Á síðasta sunnudag ákváðum
við að fara fjögur saman á Ask, en þar er steikarhlaðborð
á sunnudögum.
Til að gera langa sögu stutta fórum
við þaðan södd og sæl, enda gat hver étið
eins og honum sýndist af kræsilegu hlaðborðinu (sem
er mjög eftirsótt meðal háskólapilta í
það minnsta. Ekki sjaldan sem þeir kvarta yfir of smáum
skömmtum!!).
Undir 3000 kall fyrir frábæran mat
á Brasserie Askur.
Háskólanemi
#1749
Ég ætlaði bara að láta vita að ég
var í Elkó um daginn og hitti þar eldra fólk
sem var að skoða verðið á hitalömpum á
verönd/svalir.
Þau höfðu keypt nokkrum dögum
áður þennan sama lampa í Ormsson á 12.990
krónur og sáu svo verðið í elkó, og
engin furða að þeim brá.
Í Elkó kostaði þessi
NÁKVÆMLEGA sami lampi 2.995 krónur. Eftir þetta
ákváðu þau að kíkja í Elkó
fyrst áður en þau versla aftur, enda er verðvernd
þar.
Ég mæli með því
að fólk skoði verðið í kringum sig áður
en það verslar.
Alexandra
(ATH: Neðangreind athugasemd birtist á
vefsíðu þinni í gær, 18. desember. Það
skal tekið fram að í verslunum Bræðranna Ormsson
er ekki og hafa ekki verið til "hitalampar" til nota utandyra eða
annars staðar. Ormsson hvorki flytja inn slíka lampa né
selja frá öðrum innflytjendum í sínum verslunum.
Nánast allar þær vörur sem seldar eru í
verslunum Ormsson eru fluttar inn af fyrirtækinu sjálfu og
annast það ábyrgðar- og viðhaldsþjónustu
á þeirri vöru.
Með kveðju og þökk fyrir annars
gagnlegar upplýsingar sem á vef þínum birtast.
Ég tel mér bera skilda til að koma á framfæri
ofangreindri athugasemd.
#1749 Ég ætlaði bara að láta
vita að ég var í Elkó um daginn og hitti þar
eldra fólk sem var að skoða verðið á hitalömpum
á verönd/svalir.
Þau höfðu keypt nokkrum dögum
áður þennan sama lampa í Ormsson á 12.990
krónur og sáu svo verðið í elkó, og
engin furða að þeim brá.
Í Elkó kostaði þessi
NÁKVÆMLEGA sami lampi 2.995 krónur. Eftir þetta
ákváðu þau að kíkja í Elkó
fyrst áður en þau versla aftur, enda er verðvernd
þar.
Ég mæli með því
að fólk skoði verðið í kringum sig áður
en það verslar.
Alexandra
(ATH: Neðangreind athugasemd birtist á
vefsíðu þinni í gær, 18. desember. Það
skal tekið fram að í verslunum Bræðranna Ormsson
er ekki og hafa ekki verið til "hitalampar" til nota utandyra eða
annars staðar. Ormsson hvorki flytja inn slíka lampa né
selja frá öðrum innflytjendum í sínum verslunum.
Nánast allar þær vörur sem seldar eru í
verslunum Ormsson eru fluttar inn af fyrirtækinu sjálfu og
annast það ábyrgðar- og viðhaldsþjónustu
á þeirri vöru.
Bræðurnir Ormsson ehf.
Ólafur Már Sigurðsson
Deildarstjóri)
#1748
Ég fór í Hagkaup í Skeifunni og Nóatún
(í Nóatúni) í liðinni viku til að gera
ýmis innkaup. Mig vantaði önd og sá eina
stóra og pattaralega frá Frakklandi. Mér blöskraði
þegar ég sá verðmuninn að ég er enn
í sjokki. Sama öndin kostaði 3.998 kr. í Nóatúni
og 8.998 í Hagkaupum!!!!!!!!!!!!!!! Verðmunurinn er 125%!!!!!!!!!!!
Ég fór aftur í Skeifuna og fékk að tala
við verslunarstjórann til að sjá hvað sætti.
Eina skýringin sem hann gaf var að hugsanlega hefði Nóatún
keypt sínar endur á lægra gengi. Ég veit ekki
hvort það er rétt, en ég get vottað fyrir það
að sama "best fyrir dagsetning" var á öndunum í
Hagkaupum og Nóatúni: 30.9.2009. Endurnar í Nóatúni
eru m.a.s. 200 g þyngri, þ.e.a.s. 4000 g, en 3800 g í
Hagkaupum. Þetta er ekkert annað en rán!
Óskar nafnleyndar
#1747
Skóvinnustofa Hafþórs í Garðastræti
er hættulegt fyrirtæki. Mér urðu á þau
mistök á að fara þangað nýlega (í
góðri trú...) til að láta pússa skó
og reikningurinn hljóðaði upp á 5.200 kr.! Ég
spurði starfsmanninn hvað þessi háa gjaldtaka ætti
að þýða og fékk þá útskýringu
að það hefði tekið klukkutíma í vinnu
að hreinsa saltrák úr skónum og sá hluti
reikningsins væri kr. 4000. Þá var ég skyldaður
til að kaupa spreybrúsa sem hafði verið notaður
á skóna fyrir kr. 1.200, þetta sagði starfsmaðurinn
að væri föst venja hjá þeim. Ég starfaði
hjá Gísla Ferdinandsyni skósmiði í gamla
daga og veit að raunveruleg vinna í kringum þetta er í
kringum 5-10 mínútur. Ég sagði þeim (þá
voru báðir starfsmennirnir farnir að ræða við
mig) að það tæki klárlega engan klukkutíma
að pússa skó þrátt fyrir saltrák,
ég þekkti það mjög vel þar sem ég
hafði unnið við þetta sjálfur. Þá
spurði kallinn mig af hverju ég gerði þetta ekki bara
sjálfur..!
Það kann að vera biðtími
á milli pússninga en heildarvinnutímanum er ég
alveg klár á, handskóburstari gæti gert þetta
á korteri, ath. að þessir menn gera sig út fyrir
að vera skósmiðir með tilheyrandi pússningavélar.
Þetta er að mínu mati ekkert
annað en svívirða og óforskammanlegt okur. Ég
mæli eindregið með því að fólk beini
viðskiptum sínum eitthvað allt annað en til þessara
manna ef það þarf að nota þjónustu skósmiða,
skilst það sé einn góður í Hafnarfirði,
ég mun klárlega gera mér ferð þangað
úr bænum næst þegar ég þarf á
slíkri þjónustu að halda. Ég sé mest
eftir því að hafa ekki skilið skóna eftir,
voru hrein og klár mistök að ganga ekki bara beint út,
skólaus.
Meðfylgjandi er reikningurinn, þar
var upphaflega merkt inn "skóviðgerð". Ég fór
aftur inn og óskaði eftir réttri skilgreiningu á
reikninginn og henni var bætt inn. Vörur fyrir 1.200 kr. bað
ég ekki um að kaupa - er það ekki hreinlega ólöglegt
að rukka mann fyrir vörur sem maður óskar ekki eftir
að kaupa?
Jón Guðmundsson
#1746
Nóatún fór mikinn
og þóttist lækka vöruverð. Það hefur
hinsvegar ekki verið mjög sjáanlegt viðskiptavinum
einsog verðkannanir hafa sýnt.
Ég hef keypt þar undanfarið
Shop Rite eplasafa sem kostaði 475 krónur 2. nóvember.
Í morgun var verðið komið í 699 krónur.
Það finnst mér varla geta skýrst
af genginu eins og allt gerir þessa dagana, hátt í
50% hækkun er full bratt til þess. Einfaldlega okur.
Þetta var í Hringbrautarbúðinni. Þarf varla
að taka fram að ég keypti vöruna ekki. En annars, er
okrurunum ekki alveg sama þótt þeir séu nefndir
hérna ? Venst það bara ekki eins og allt hitt ?
Lækkar eitthvað ?
Ingibjörg
(Nb. Þeir humma þetta bara fram
af sér. Þessi síða hefur takmörkuð áhrif.
En dropinn holar steininn... kannski!)
(17.12.08):
#1745
Ég á nýlegan Hunday Santa FE. Í ágúst
sl. fór ég með bílinn í 30 þús
km skoðun hjá B og L (það er skylda því
annars dettur hann ábyrgð út), þá kostaði
skoðunin kr. 48 þúsund. Þessi skoðun er sú
mesta og dýrasta.
Nú er bíllinn kominn í 45
þús km og aftur þarf ég fara með hann í
skylduskoðun ef ég ætla halda ábyrgð. Nú
kostar þessi aðgerð, sem í felst olíuskipti,
sía og skoðun á slitfötum alls kr. 45.000. Mér
var tjáð að vinnulaun hafi ekkert hækkað síðan
í ágúst en aðkeypt vara hefur hækkað
eitthvað.
Mér brá verulega við þessa
tölu og spurði hvað kostar 30 þús km skoðun.
Jú hún kostar kr. 64.000. Ég er með reikning fyrir
þessari skoðun í ágúst sl og þar er
vinnuliður kr. 28.000 og annað (síur, olía og fl.)
19.600. Ef vinnulaun hafa ekki hækkað þá hefur BL
og hækkað þetta "annað dót" um 80% frá
því í ágúst eða úr 19.600
í 35.283.
Ég benti B og L á þó
að verðbólga væri mikil þá væri
hún ekki 20% á mánuði. Ég þakkaði
pent fyrir og keyri frekar á þjónustuverkstæði
untan Rvk en að taka þátt í þessu sukki.
Stefanía Katrín Karlsdóttir
(+ Sæl Stefanía, það er
ekkert sem segir að þú þurfir að láta
B&L sjáum þessa skoðun, þeir geta ekki fellt
úr gildi ábyrgð á bílnum þínum
ef þú kemur ekki til þeirra að láta yfirfara
bílin. Þér er frjálst að fara á hvaða
viðurkennda verkstæði sem er og láta yfirfara, smyrja
og skipta um síur í bílnum þínum, mundu
bara að láta verkstæðið kvitta fyrir þeirri
þjónustu í þjónustubók bílsins.
Það er algengur misskilningur hjá fólki að
það sé skuldbundið til að fara á verkstæði
hjá umboði bílsins og umboðin eru auðvita ekkert
að leiðrétta það. Bifreiðaumboðum er ekki
lagalega stætt að neyða þig til að eiga viðskipti
við sig bara. Kv, Brynjar)
#1744
Á Mözdu 6 þar sem öxulliður bilaði, sennilega
eftir mistök á verkstæði
þar sem skipt var um bremsuklossa.
Og slangan í bremsuna lá svo utan
í og eyðilagði gúmmíið
sem verndar öxulliðin. En það er önnur saga
og
ég fæ það ekki bætt.
Brimborg selur öxullið í
mözdu 6 2006 á 200 þús. krónur.
Sami/svipaður hlutur er á 80$ á
ebay
usa ~9000 krónur.
Þó er ekki víst að það
passi þar sem ameríkanar eru með 2.3 vél en 2.0
vél í evrópu. Hringdi
til mazda uk og þeir vilja ekkert gera, standa
með sínum mönnum á íslandi
sem fá þetta frá danmörku sem er milliliður
sem smyr vel á og þeir fá
þetta frá japan. Eina sem mazda uk vildi
gera var að benda mér fyrst á
Grænland, en ég benti þeim á það gengi
nú ekki þá var það
bara Danmörk. Þvílíkt rugl.
Mig langaði að kvarta við móðurfélagið
í Japan, en það virðist ekki
hægt. Allir Evrópsku Mazda
eru framleiddir í Japan.
Fann loks notaðan öxullið á
íslandi í klessukeyrðum bíl. En sá
vildi
bara okra, selja á 60 þús.
Hann vildi loks lækka sig í 45 þús. Tek
það fram að Stilling, N1 og Fálkinn
geta ekki reddað þessu þar sem
engin generískur framleiðandi er byrjaður
að framleiða þetta því þetta
bilar aldrei í Mözdu. Gott
að vita það.
Þetta er nú meira okurskerið.
Sigurjón Axel Guðjónsson
#1743
Ég lét auglýsingamáttin draga mig á
tálar í dag en flestir hafa heyrt auglýsingar frá
Kaupþing
um nýju “Gjafakortin” sem þeir bjóða. Ég
fór og ættlaði að nýta mér þessa
þjónustu þeirra og um leið klára restina
af jólagjafa innkaupunum.
Þegar ég kom til gjaldkera og ber
upp erindið þá byrjar hún strax á því
að tilkynna mér það að fyrir utan það
að greiða fyrir þá inneign sem ég vildi hafa
á hverju korti þá kostaði hvert kort mig 450kr.
En ég hafði heyrt fjölmargar auglýsingar um kortið
en hvergi heyrt að kortið sjálft komi til með að
kosta, á gjaldkeraborðinu lá bæklingur um kortið
sem ég skoðaði en það stóð ekkert í
honum um þennan kostnað og stúlku greyjið í
gjalkerastöðunni var jafn hissa á því líka.
Þarna er Kaupþing semsé að
bjóða þér að leggja peningana þína
inn á reikning sem ber enga innlánsvexti og eru þannig
í raun að fá til sín með þessu ókeypis
fjármagn en ég og þú þurfum að greiða
þeim fyrir það að taka við því. Ef
þetta er ekki okur, hvað þá?
Ásmundur Thorvaldsson
#1742
Ég er ein af þeim sem hef verið ósátt með
Símann,
bæði hvað varðar litla þjónustulund og verðskrá,
og sjálf hef ég skipt yfir í Nova. Ég vildi
benda á síðu Póst-
og fjarskiptastofnunar sem er (að ég held) hlutlaus og birtir
verð á þjónustum símafyrirtækjanna:
Þarna er hægt að skoða ýmis skjöl og bera
saman verðin.
María
(16.12.08):
#1741
Mér blöskraði svo í dag þegar ég verslaði
í Hagkaupum í Skeifunni að ég ákvað
að skrifa þér. Ég keypti glært límband
í pakkningu í ómerkilegu plaststatívi.
Þegar í skoðaði kassakvittunina vegna þess að
mér fannst heildarupphæðin óeðlilega há
þá kom í ljós að límbandið kostaði
kr. 925,00. Ég ákvað að skila límbandinu ásamt
DVD - Latibær sem ég hélt að kostaði kr. 999,00
þar sem í einum rekkanum voru ýmsar útgáfur
af Latabæ á kr. 999,00 en þegar ég athugaði
kassakvittunina þá kostaði þessi DVD kr. 2.692,00.
Ég ákvað þá að skila bæði
límbandinu og Latabæ og var mér þá vísað
á þjónustuborð þar sem var löng biðröð
af fólki. Loksins þegar ég komst að þá
var mér afhent úttektarnóta. Ég var óhress
með það og óskaði eftir endurgreiðslu . Afgreiðslustúlkan
sem var ung og kurteis hafði greinilega fyrirmæli um að gera
slíkt ekki svo hún kallaði á stúlku sem
virtist ofar sett en ég nennti svo ekki að standa í meira
veseni út af þessu enda lengdist röðin fyrir aftan
mig svo ég fór með þessa úttektanótu.
Í köld keypti ég svo út í Pétursbúð
límband með meira límbandi á og betra statívi
á kr. 150,00. Nú mátt þú endilega reikna
út verðmuninn í %. Ég efa að ég
versli framar í Hagkaupum – nema fyrir inneignarnótuna. Fólk
þarf greinilega að vera vel á verði núna og
passa sérstaklega upp á smáhlutina sem í þessu
tilfelli eru á verðlagi sem ég myndi kalla svívirðilegt
okur.
Jóhann G Jóhannsson
#1740
Fór í Heklu og ætlaði að fá mér
aukalykil fyrir bílinn til öryggis, (á bara einn)
og viti menn, lykill fyrir fjarstýringu kostar yfir 20.000 kr. Þá
vildi þá fá venjulegan lykil en hann átti að
kosta yfir 10.000 ! auk þess átti ég að hringja
á undan mér til að tékka á að lyklasmiðir
væru örugglega við eða viðlátnir!
Inga
#1739
Við mæðgur fórum í Pennann Eymundson
á Akureyri í kvöld ég ætlaði að
kaupa eitt
simpson blað sem var verðmerkt á
1375 þegar ég kom með það á kassann átti
ég að
borga 1950 móðir mín
var að kaupa pakka með litlum tindátum sem var verðmerkt
1995 en á kassanum kostaði pakkinn
3750 við fengum samt vöruna á verðinu sem
hún var verðmerkt á, það
er samt greinilega verið að hækka allar gamlar byrgðir
í búðinni og það
er þá heldur ekkert smáræði sem þetta
hækkar tindátapakkinn
hækkar um 1800kr. Hvernig finnst þér
þetta?
Brynhildur Kristjánsdóttir
(Nb. Satt að segja alveg sturlað!)
#1738
Ég var að fá símreikning minn núna en ég
brá mér af landi í 5 daga í nóvember
þar sem ég dvaldist í NY í USA en á þeim
tíma bæði bárust mér símtöl
í gemsann minn sem og ég hringdi nokkur símtöl
(á minn mælikvarða eru þetta fá símtöl
eflaust ekki fyrir alla) (þessi nauðsynlegustu sem öll voru
mjög stutt) í total voru þetta 117 mínútur
(ath inn og út) og fyrir þessi reiki símtöl borga
ég litla 34.875 kr fyrir 56 símtöl en ef ég deili
þessu á mínútu þá kostar hver mínúta
mig 453 kr og hvert símtal 622 kr. Einu svörin sem ég
fékk frá símanum er að gengið sé að
leika mig svona grátt....... Reiðin var vægast sagt mikil
skal ég ykkur segja og vil hvetja alla til þess að
passa símanotkun erlendis og helst forðast hana.
Inger (að halda í jólaskapið
í ráninu)
#1737 Parmesan
ostageiri - Kaupi alltaf svona mjóan geira í Bónus
á milli 500 og 600 krónur. Um daginn var hann uppseldur
blessaður þannig að ég stormaði í Nóatún.
Þar kostaði sami geiri sama tegund 1499 krónur.
Ég hljóp nottla út og beið í nokkra daga
þangað til osturinn var aftur kominn í Bónushillur
og verðið var 590. Pínu smá munur
Jórunn
#1736
Ég fór í Toys‘r‘us á Akureyri um daginn og
hugðist versla sparkbíl handa dóttur minni. Í
versluninni voru til tvær gerðir af sparkbílum og kostuðu
þeir 10.450 kr. Stk. Mér blöskraði verðið,
og trúði að leikföng hefðu hækkað þetta
mikið. Nokkru seinna lenti ég svo inn á leikfangaland.is
og rakst þá á mun ódýrari sparkbíla.
Á þessari síðu er reyndar mikið af fallegum
leikföngum á góðu verði. Ég pantaði
af þessari síðu og fékk mjög skjóta
og góða þjónustu.
Gunna
#1735
Búið er að eyðileggja verðskynið hjá
mér með öllum þessum hækkunum, en það
sem
verra er húmorinn er farinn líka!
Fyrir rúmri viku, á sunnudegi, fór ég í
Lyf
og heilsu í JL húsinu og keypti Fastrax
"mannbrodda" í jólapakkann
á 1.706 kr. Í gær, viku seinna ætlaði ég
að kaupa alveg eins pakka en viti menn, pakkinn
kostaði yfir 3700 kr. Er hægt að
bjóða manni þær skýringar að nýja
sendingin hafi hækkað svona mikið? Auðvitað fór
ég tómhent út, algerlega kjaftstopp.
Brynja
#1734
Bara að benda á svona í kreppunni að BT er
með DVD (bæði + og -) diska,
4,7gb á 50 kr. stykkið! Hræódýrt
- flott í kreppunni!
Nafnlaus
(15.12.08):
#1733 Ég hef komið
mér upp gaggnagrunni sem safnar öllum verðupplýsingum
frá þeim sem auglýsa verð sín á netinu
sjálfvirkt. Fyrirtækin sem ég er kominn með eru
Elko, Húsasmiðjan, Rúmmfatalagerinn og Vínbúðin.
Ég er svo að bæta við fleirum og er þ.a.m að
klára Heimilistæki um þessar mundir. Upplýsingarnar
sæki ég í lok dags á hverjum degi þannig
allar verðbreytingar eru gripnar strax. Í grunninum eru um 15000
vörur og 22000 verðupplýsingar fyrir þessar vörur.
Ég hef svo slegist í lið
með Nískupúkanum
og þeir ætla að byrta upplýsingar úr grunninum
á næstunni. En ég hef opnað blog síðuna
bargain.blog.is
þar sem ég ætla að taka fyrir áhugaverðar
upplýsingar sem ég dreg uppúr grunninum og mig langar
að vekja athygli á eða deila með öðrum. Endilega
kíktu á hana.
Gummi
#1732
Bónus vs. Hagkaup - Hef um árabil
beint viðskiptum mínum til Bónusverslananna, enda hafa
þær yfirleitt komið vel út í verðkönnunum.
Nú hafa þeir um nokkra hríð verið að teygja
sig inn í jólabókageirann ásamt DVD og tónlist.
Ég fór í kringluna og ákvað
að athuga með bækurnar í bónus, verðið
yfirleitt verið gott. Við innganginn hafði verið stillt
upp rekkumm með DVD og tónlist á þröngu svæði
en maður svona "grípur" þetta með í leiðinni,
enda öruggt að "Bónus býður betur" og fjarstæðukennt
að fá þetta ódýrara en þar. Svo kíkti
ég yfir í Hagkaup í kringlunni, en báðar
verslanakeðjurnar eru undir sama rekstaraðila, Haga. Þar
sá ég að DVD diskarnir 2 sem kostuðu mig 3599 stk.
í Bónus (WALL-E og 2. Sería KLOVN) voru báðir
á verðinu 2699 stk. , munurinn 1800kall, ca. það sem
nýr geisladiskur kostaði fyrir nokkrum vikum. Ég
var illa blekktur af góðlátlega Bónusgrísnum,
draslaralegu lagerhillunum og kaótískri uppstillingunni í
"lágvörurverðsversluninni".
Benedikt Árni Jónsson
(ATH: skv. okkar skönnun og verðkönnunaraðilum
þá kostar Wall-e kr. 2,489,- í Bónus og 2,699,-
í Hagkaup. Klovn serian kostar kr. 3,599,- í Bónus
og kr. 4,299,- í Hagkaup. Vinsamlegast sendið okkur
staðfestingu á því hvar okkur hefur yfirsést.
Ester Harðardóttir, Bónus)
#1731
Mig vantaði snúru í Samsung myndavélina
mína svo ég gæti fært myndirnar yfir í
tölvuna. Ég var í Kringlunni og fann hvergi BT svo ég
fór í Sony Center. Þar tjáði afgreiðslumaðurinn
mér að það væri best fyrir mig að kaupa
kortalesara sem kostar 4990 krónur hjá þeim. Snúruna
ætti hann ekki til en hún gæti kostað um 6-7 þúsund
krónur.
Í Elko fann ég nákvæmlega
sama kortalesara á 1990 krónur. Drengurinn sem afgreiddi
þar sagði mér að kortalesarinn væri besti kosturinn
en snúra sem gegnir sama tilgangi og lesarinn gæti kostað
allt að 5 þúsund krónur. Þarna munar
3000 krónum á kortalesara. OKUR !!!
Ég keypti kortalesarann í ELKO.
Berglind Inga
#1730
Enn lendir maður í því í Krónunni.
Við vorum komin á kassann og áttuðum okkur þá
á því að það vantaði tannkrem.
Ég stökk og sótti tannkremstúbu án þess
að velta fyrir mér verði. Jæja... nú erum við
afgreidd og pokinn kostaði 7.263 krónur! Þá fórum
við að skoða skiptinguna og 100 ml tannkremstúpan kostaði
litlar 569 krónur! Ótrúlegt hvað er hægt
að svindla inn á mann dýrum hlutum innan um alla "ódýru"
dagvöruna. Við vorum samt búin að vera að spara
við okkur og ákváðum að kaupa ekki klettasalat
þar sem 75 gramma poki kostaði 495 krónur, kílóverð
6600 krónur! Ertu að fokkin grínast í mér?
Kristján
#1729
Frænka mín fór inn í Eymundsson í
Hafnarfirði og keypti sér blý í
skrúfblýant. Verðið var
560 kr. Henni fannst þetta undarlega dýrt þannig að
hún sagði móðir sinni frá
því, en móðirin mundi eftir þvi að síðast
þegar
hún keypti blý kostaði það
um 100 kr.
Þannig að hún hringdi í
Fjarðarkaup,en þar kostaði smskonar blý 106 kr.
Það þarf vart að taka það
fram að að 560 kr. blýinu í Eymundsson var skilað
og 106 kr blýið keypt í Fjarðaðarkaupum.
Ef þetta er ekki okur þá veit
ég ekki hvað það orð þýðir. Ég
hef grun um að
miklar hækkanir eigi sér sérstaklega
stað þar sem unglingar kaupa mikið í
þeirri von að þau séu
ekki jafn eftirtektarsöm á verð. Unglingar eru ekki
vitlausir og eru nú þegar farnir
að fylgjast með verði enda margir þeirra að
vinna fyrir sér, ásamt skólagöngu.
Ég hvet þau þvi sérstaklega að vera á
verði hvað varðar hækkanir
á þein vörum sem þau kaupa mest. Sem og við
öll,
og kaupum ekki okurvörur og látum
ekki ljúga að okkur, t.d. þegar fyrirtæki
hækkar vöru, lækkar hana síðan
aftur og auglýsir hana á tilboði. Notum eigin
innsæi og dómgreind.
Helga Steingerður
(13.12.08):
#1728
Vill bara benda á búðina Spilavinir sem er staðsett
á Langholtsveginum. Var að koma þaðan keypti þar
púsluspil Wasgij? (sem ég hef gert alltaf fyrir jólin)
var búin að sjá það í Pennin Eymundson
þar sem það kostaði 3.560.s em mér fanst okur
..en fann svo það hjá stelpunum í spilavinum á
kr 2.950..og var ánægð með það..Takk fyrir
góða síðu.
Auður Kj
#1727
Meira um okur Lyfju í Staðarbergi, Hafnarfirði.
Pakkinn af Nicotinell nikótíntyggigúmmí,
2 mg. mint, 204 stk., kostar kr. 7.280 í Lyfju, Staðarbergi,
Hafnarfirði (kannað 10. desember 2008, kl. 18:30).
Daginn eftir keypti ég sama skammt (Nicotinell
2 mg. mint, 204 stk.) í Lyfjaveri, Suðurlandsbraut, Reykjavík.
Pakkinn kostaði þar kr. 4.682!!
Mismunur á Lyfju og Lyfjaveri: kr. 2.598,
Lyfjaveri í hag.
Mér er það gersamlega óskiljanlegt
að nokkrum manni skuli detta í hug að versla við Lyfju.
Stöndum saman, sniðgöngum okurapótekin,
Lyfju og Lyf og heilsu!
Valdemar Pálsson
#1726
Prentmet!! Ætlaði að prenta
30 jólakort með mynd af börnunum... 15.800.- á vask!!
Er ekki allt í lagi???
Berta
#1725
Fór í Kúnígúnd (villerroy og
boch í Kringlunni keypti Rosendahl
vatnsglös 6 stk í kassa verð
4.730.-
Sá sömu glös í Líf
og Lyst Smáralind á kr 3.640.-
Vildi bara benda á mismun á verði
1.090.-
Það er of mikill munur.
Neytandi
#1724
Ég vill bara hafa orð á því hvað það
er ömurlegt af N1 að birta ekki bensín- og
olíuverð á vefnum hjá
sér.
Þetta er eina olíufélagið
sem ekki gerir það.
Mig minnir að þetta hafi gerst þegar
Esso varð breytt í N1, þá þegar var eftir
því tekið að þeir
birtu ekki verðin lengur - meðal annars af FÍB, þar
áður
hafði Esso sýnt verðin alveg niður
á hverja einustu bensínstöð.
Ég vil bara segja að sá stjóri
eða sú stýra sem ákvað þetta - í
markaðsdeildinni?, að þetta var
ömurleg ákvörðun og er engin þjónusta
við
kúnnann.
Kiddi
(Nb. Þá er bara að sleppa
því að versla við þá.)
#1723
Við eigum 18 mánaða skyrgám sem fer með u.þ.b.
3/4 af stórri dollu á dag. Við erum því
að kaupa stóra skyrdós næstum daglega. Í
dag brá okkur heldur betur í brún þegar við
skutumst við í Krónunni, sem á vel að
merkja að teljast til lágvöruverslana, dósin þar
kostaði kr. 270 á meðan sama dós kostar kr. 203 í
Bónus, þetta er semsagt 33% dýrara í Krónunni.
Ef við versluðum eingöngu í Krónunni værum
við því að sóa u.þ.b. kr. 2000 á
mánuði og munar um minna.
Guðmundur og Heiða
#1722
Langaði að minnast á vegna greinar nr.1418 að Borgarhreinsun
er með tilboð á jakkafötum og skyrtum einfaldlega vegna
þess að þeir hækka allan annan fatnað uppúr
öllu valdi. Má líka minnast á að þeir
strauja ekki skyrturnar, þær fá aðeins lágmarks
meðhöndlun. Gott og blessað að borga lítið
en það er bara svo að þú færð ekki
allt fyrir ekkert. Ég borga frekar meira og fæ góða
þjónustu, góða pökkun og góða hreinsun
og pressun.
Annars vildi ég segja frá því
að ég er ákafur aðdáandi marsipanstanga sem
eru seldar í Bakarameistaranum en þær eru aðeins
seldar um jólin. Ég átti leið þarna um um
daginn og rak augun í að þær voru að setja þær
fyrstu fram fyrir þessi jól svo ég, nammigrísinn,
skellti mér auðvitað á eina. Og blæddi 198
krónum fyrir. Þetta er eins og snickerstöng.
Daginn eftir hugsaði ég mér
gott til glóðarinn og keypti aðra svona stöng. Var
líka að kaupa fyrir fleira fólk og fór svo að
lesa á miðan og rukka liðið og rak augun í að
ég hafði borgað 395 krónur! Á einum sólarhring
hækkaði þetta nammi um tæpar 200 krónur! Ég
hef ekki stigið fæti þarna inn síðan.
Var einnig stödd í Rúmfatalagernum
í Smáranum á dögunum og rak augun í lyklakyppu
auglýsta á 99 krónur og ákvað að skella
mér á eina. Var með meira og borgaði það.
Fór útí bíl og sá þá að
ég hafði borgað 499 krónur fyrir eina skitna lyklakippu!
ég vindi mér aftur inn og stend í miklu stappi við
þjónustuborðið og labbaði meira að segja með
dömunni inní búðina og sýndi henni skiltið.
Neinei, hún reif það af og sagði að þetta
væri vitlaust verðmerkt. Mér er alveg sama. Eftir mikið
stapp og tuð og vesen endaði þetta á því
að ég gekk út. Og mun ekki ganga þarna inn aftur.
Nína Rún
(12.12.08):
#1721
Ég var að koma úr Lyfju í Setbergi Hafnarfyrði
og var að kaupa Kusk meltingarlyf sem er án lyfseðils.
Það kostaði 3349 krónur.Þar
sem mér fanst þetta nokkuð há upphæð
ákvað ég að kanna verðið í
Lyfjaveri við Suðurlandsbraut og þar
kostaði sama lyfið 2735.kr.Það var semsagt 614 krónum
ódýrara.
Við hjónin sem bæði erum
komin yfir sjötugt höfum síðustu 2 mánuði
fært kaupum á lyfjum frá Lyfju
yfir til Lyfjavers við Suðurlandsbraut,þó
að við búum í Setbergi rétt hjá Lyfju.Ég
tel að fólk ætti að skoða
muninn.Það getur skipt þúsundum
á stuttum tíma.
Óskar nafnleyndar
#1720 IKEA:
Þetta parket kostaði 20 nov 2100 kr. pakkin, nú er hann
komin í rúmar 4000 kr. Ég hélt að IKEA
hafi talað um 25 - 30 % prósent
hækkun en þetta er tæplega
100% hækkun!
Heimir
( + Vildi taka undir með #1720 varðandi
IKEA. Ég fór þangað fyrir ca 2 vikum til að
kaupa rúm handa dóttur minni. Á leið minni í
gegnum verslunina rak ég augun í rimlagardínu, 60*250,
ólituð viðargardína. Verðmiðinn : 1.490.-
krónur. Ég kippti einni með mér, enda upplagt
fyrir rúðuna í svalahurðinni. Þegar á
kassann var komið fylgdist ég vel með þegar gardínan
var skönnuð inn og viti menn, verðmiðinn: 3.890.- krónur!!
2.400.- krónur sem það hefði getað kostað
mig að labba í gegnum búðina ef ég hefði
ekki verið á varðbergi. Starfsmaður á kassa hringdi
inn í vefnaðarvörudeild og þar var verðið
staðfest, 3.890.-. Ég var ekki alveg tilbúin að sætta
mig við það, taldi að ég hefði rétt
fyrir mér varðandi verðið og rölti því
inn í búð til að sannreyna þetta sjálf.
Þegar ég kom að hillunni þar sem gardínan
var, var verðið 1.490.-, eins og mig minnti. Ég fékk
því starfsmann vefnaðarvörudeildar til að kíkja
á þetta með mér, og þetta var sú sama
og hringt hafði verið í þegar ég var frammi
á kassa. Hún skildi ekkert í því hvernig
gæti staðið á þessu, ég sagði henni
að mér væri nú bara nánast sama, ég
ætti rétt á því að fá vöruna
á auglýstu verði og hún var nú alveg sammála
mér þar. Ég rölti því aftur fram
á kassa, starfsmaður þar hringdi aftur inn í vefnaðarvörudeild
og fékk staðfest að ég fengi gardínuna á
1.490.-.
Já, það getur borgað sig
að vera eftirtektarsamur, þetta er rúmlega 150% verðmunur
takk fyrir! Ég ræddi þetta við staðgengil verslunarstjóra
og þá fékk ég einmitt þau svör að
þeim þætti þetta mjög leiðinlegt og að
þau hefðu hækkað vörur hjá sér um
25%, ég benti henni á að það gæti nú
ekki staðist í þessu tilviki. Svörin sem ég
fékk þá var að allir í kringum þau
væru að hækka meira .... var ekki alveg að ná
því hvað það skipti máli þarna????
Held amk að ég fjölgi ekki ferðum
mínum í IKEA á næstunni!
Kristrún Lísa Garðarsdóttir)
#1719
Vildi bara benda á að í Toys´R´Us
kostar BABY BORN bleiu pakki (5 stk) rúmlega 2000kr en "aðeins"
999kr í Hagkaup.
Hildur
#1718
Í Krónunni er bara til ein tegund af munnskoli og
eru litlir 250ml af Colgate seldir á 650 krónur! Kemur ekki
til greina að kaupa á þessu verði. Í Spar í
Bæjarlind rak ég svo augun í 500ml flösku af sama
munnskoli á 650 krónur. Og ekki er Spar þekkt fyrir
lágt verð. Ódýru búðirnar eru með
algengustu vörurnar ódýrar. Svo kippir maður með
sér stökum hlutum sem eru ógeðslega dýrir.
Maður þarf alla vega að hafa augun opin.
Ég hef alltaf fengið frábæra
og ódýra þjónustu í saumastofunni
á þriðju hæð í Smáralind.
Gömul og slitin peysa gekk í endurnýjun lífdaga
fyrir aðeins 1200 krónur.
Kristján
#1717
Langar að láta vita um rétt viðbrögð 2ja
fyrirtækja og argasta
dónaskap og lélega viðskiptahætti
hjá því þriðja.
Lenti í rifrildi og dónaskap hjá
vakstjóra N1 um daginn, ætlaði að
kaupa auglýst tilboð, en var tjáð
að það hefði runnið út um morguninn
(N1 var útmálað af þessu
tilboði, bretti merkt tilboðinu með vörunni
á, skilti uppivið o.s.frv.).
Ég sendi inn ábendingu til N1 og fékk
óumbeðið smá glaðning
í pósti frá þeim með skilaboðum um að
þeim þætti
þetta leitt og þeir hefðu brugðist
við ábendingunni.
Keypti rúm í Svefn og Heilsu
handa stelpunni minni. Þegar kom að því
að setja það saman þá
reyndist það vera gallað, kom svo á daginn að
öll sendingin reyndist gölluð.
Svefn og Heilsa sendi mann heim til
okkar með alla sendinguna og hann tók
til heila hluti í rúmið úr
_allri_sendingunni. Í þokkabót
þá endurgreiddi verslunin helminginn
af verði rúmsins til að bæta
óþægindin!
Því miður get ég ekki
sagt það sama um Múrbúðina.
Við keyptum heil ósköp af málningu
í versluninni, sem reyndist svo
ekki þekja frekar en vatnslitamálning.
Eftir fjórar umferðir af þessu
rusli höfðum við samband við
verslunina. Eftir _margar_ tilraunir til
að ná í framkvæmdastjóra
fyrirtækisins (sem virðist vera ansi oft í
mat eða heima hjá sér) þá
var sendur maður heim til að skoða
málninguna. Eftir þá skoðun
heyrðist ekki orð frá Múrbúðinni.
Eftir
nokkra daga og tilraunir til að hafa samband
við verslunina, kemur upp
úr kafinu hjá símadömu
að starfsmaðurinn hefði komið hlæjandi til baka
afþví að það hefði
verið reynt að mála yfir epoxy-málningu með þessari
málningu. Það þykir
okkur undarlegt þar sem að engin epoxy-málning er
til staðar. Eftir sitjum við með
sárt ennið að hafa keypt rusl- málningu hjá
Múrbúðinni (sem hefur enn ekki séð sóma
sinn í að svara
einu sinni skriflega eða formlega tölvupóstum
og símhringingum).
Ekki mun ég versla framar við Múrbúðina
og ég vara fólk eindregið
við! Annan eins dónaskap og
vanvirðingu við viðskiptavini hef ég
sjaldan upplifað.
Óskar nafnleyndar
#1716
Þann 4 júní 2008 fór ég með Lexus
200 is,árgerð 2002 í 60ÞÚS KM VIÐHALDSSKOÐUN.
Mér var sagt að þessi skoðun
myndi kosta um 42.000,en ef einhver frekari kostnaður yrði myndu
þeir hringja og láta mig vita
hvað þyrfti að gera og hvað
það kæmi til með að kosta.Allavega þá
var hringt og kostnaðurinn endaði í 49,456.
Þetta var gert... skipt var um 2 perur
,loftsíu ,miðstöðvarsíu ,mótorolíu
,gírolíu og smursíu og fl.
Allt í lagi !!! ,hér er allt
í góðu fyrir utan frekar dýra skoðun ,en jæja
þetta er Lexus:).
Svo var aftur hringt og maður á verkstæðinu
sagði mér að bremsudiskarnir að aftan væru ónýtir
,að ég gæti ekki keyrt
mikið lengur á þeim svona ,að
bíllinn kæmist aldrei í gegnum skoðun og að
skipta um diskana kostaði um 80.000.
Þegar ég kvartaði yfir verðinu
bauð hann mér 15% áfslátt. Ég sagðist
ætla að bíða með þetta,þá endurtók
hann ræðuna og sagði að það yrði að
skipta um diskana sem fyrst.
Sem betur fer þá sleppti ég
því og hringdi í Stillingu ,þar kostuðu diskarnir
20.000 og hver sem hefur eitthvað vit á bílum getur skipt
um svona diska á tveimur tímum.Ég sleppti nú
alveg að skipta um diskana og ek um á þeim gömlu
ennþá ,því það er ekkert að þeim.
Lúlli.
#1715
Ég hef um árabil verslað á afsláttardögum
í Heilsuhúsinu, gefið var út sérstakt
skírteini þar sem kemur fram nafn ofl.sem viðkemur eiganda
þess. Þetta skírteini sýnir maður svo á
fyrrnefndum afsl.dögum. Heilsuhúsið auglýsir svo
sérstaka afsláttardaga einu sinni í mánuði,
sem er nú gott og blessað og ég hef sem áður
sagði notfært mér þetta lengi vel í þeirri
góðu trú að nú væri ég að
gera góð kaup.
En viti menn, bæði Nettó í
Mjódd og Fjarðarkaup ( Fræið) eru með mun lægra
verð á sínum vítamínum, teum og öðru
sem telst stuðla að bættri heilsu. Þar eru allir dagar
eins, sama verðið. Þetta kallar maður nú ekki
heiðarleg viðskipti því að auðvitað ætti
H.húsið að sjá sóma sinn í því
að vera með allægsta verðið á þessum
svokölluðu "afsláttardömum sínum". Þetta
er ekkert annað en blekking við auðtrúa viðskiptavini
sem eyða sumir þúsundum króna til að öðlast
betri líðan.
Það er skömm að svona.
Óskar nafnleyndar
#1714
Fyrir þremur árum fékk ég endurskoðun þar
sem tengibúnaður var óskráður, mér
var ekki boðið að skrá hann heldur skildi ég
koma aftur með tilheyrandi kostnaði, vinnutapi, milliferðum
og endurskoðunargjaldi. Í síðustu viku fér
ég með annan bíl í skoðun hjá Frumherjaá
Hesthálsi, þá fékk ég endurskoðun,
ástæðan var ójafnir hemlunarkraftar, í athugunarsemd
var srifað "öxulk". Ég fór og leit á hjólabúnaðinn
og komst að raun um að bremsur virkuðu eðlilega enda gerði
ég ekkert fyrir þær, en öxulklemmuna vantaði
yfir hosuna.
Ég lagaði það og fór
með bílinn á aðra skoðunarstöð þar
fór hann í gegn án athugsemda, enda fylgdist ég
með hemlamælingunni. Þessi ágæti skoðunarmaður
Frumherja merkti í annan reit til að láta mig koma aftur,
þar sem öxulhosa er ekki endurskoðunarskilt atriði frekar
en númersljósin sem hann setti út á. Fyrir
þetta mátti ég greiða 1450 kr. + vinnutap og milliferðir.
Auk þess gefur þetta ranga mynd af ástandi bifreiða
í samantekt Umferðarstofu.
A Ellert
#1713
Veit að margir er búnir að senda inn Okur-dæmi frá
Toys
R Us sem virðist alveg staðráðið í að
koma frá sér eins mörgum æpandi viðskiptavinum
og hægt er, og allir kúnnar kvarta undan verkjum í
afturenda eftir viðskiptin!
En ég vildi benda á að dóttir
mín fékk lítið plast dúkkuþríhjól,
til þess að ýta á undan sér, og var það
keypt í versluninni í júlí og kostaði 1.799kr.
Mjög ásættanlegt verð fyrir þessa vöru
og ég var staðráðin í að kaupa svona í
gjöf fyrir litla vinkonu hennar núna fyrir jólin. Gerði
mér ferð í búðina og viti menn, sama varan
kostar núna kr.7.299. Jáhá, þetta er bara
orðið rúmlega 4x verðið á upprunalega hlutnum
- það var engin smá gengishækkun í Toys R
Us landi.
Eins má benda á að Littlest
Pet Shop fígúrur, 10 stk í pakka, kosta 13.500kr í
TRU en kosta undir 5000kr í Hagkaupum og Europris.
Soffia
(NB. Okurslappleiki TRU virðist hafa spurst
út, a.m.k. var fremur fámennt þar í Smáratorgi
í gær og enginn að bíða við kassann...)
(11.12.08):
#1712
Fór í Europris um daginn og sá þessa
hrikalega girnilegu Hershey´s kossa sem
mig langaði í. Í rekkanum var
verðið 1390kr fyrir 241 gr poka. Ég hreinlega
trúði þessu ekki. Hugsaði
strax til okursíðunnar og tók mynd af okrinu. Tók
samt
poka með mér og tjékkaði
á prísnum á kassanum svona til öryggis og viti
menn.
1390KALL fyrir 241 grömm af súkkulaði!!!!!
Er ekki allt í lagi hjá Europris
spyr ég bara???
Róbert Páll
#1711
Ég er ekki einn af þeim sem er í því að
smyrja mér lifrarkæfu-samlokur á
morgnana og fer því ansi oft (alltof
oft) á einhverja skyndibitastaði í
hádeginu. Það hafa komið
nokkrar fínar ábendingar á síðunni sem
ég hef
nýtt mér en ég hef hvergi
séð minnst á ítalska skyndibitastaðinn Sbarro
sem eru í bláu húsunum í
Faxafeni og í Kringlunni.
Fínir skammtar (amk feikinóg fyrir
mig) á mjög viðráðanlegu verði. Ég
borða mig saddan fyrir 900-1000 kr sem er
bara nokkuð sanngjarnt að mínu
mati.
Benedikt
#1710
Mig langaði að segja frá minni reynslusögu af Garðheimum
því okur fyrirtæki. Ég keypti útiljósaseríu
tvær gerðir af þeim í fyrra fyrir jól fyrir
ca 30 þúsund, svo var ég að reyna að koma annarri
seríunni í gang en þá voru 150 perur ónýtar.
Fór ég með seríuna til
þeirra í Garðheimum og kvartaði yfir því
að það væru þetta margar perur ónýtar
og svörin sem ég fekk voru þau að það var
svo slæmt veður í fyrra.
Skip slitnuðu frá landfestum (ég
bý í Kópavogi ekki útá sjó) og
serían sveiflast til í roki. Þá sagði ég
að þessar seríur eru ekki gerðar fyrir Íslenskar
aðstæður og væru þar af leiðandi bara drasl.
Ekkert var hægt að gera fyrir mig nema
að ég gat keypt perur 5 í pakka sem kostar 350 kr og
ég hefði keypt 150 perur værir kostnaðurinn á
þeim 10.500 hallo þetta verð er 1/3 af verðinu sem
ég keypti í fyrra. Ég mun aldrei nokkurn tíma
fara í þessu okurbúllu og því síður
vegna þjónustulundarinar hjá þeim. Annað,
hin serían fer heldur ekki í gang og er ég ekki að
reyna að koma henni í gang vegna þess að svörin
verða væntanlega á sömu lund hjá þeim.
Þannig að þetta seríudót fer í tunnuna.
Góð fjárfesting eða hvað á einu ári
(serían var notuð í ca 30 daga í des til Jan)?
Ólafur I Arnarson
#1709
Fór í 10-11 á Hjarðarhaga í síðustu
viku og ætlaði að kippa með mér einu Myllu
heimilisbrauði. Þegar að kassanum kom sagði kassamaðurinn
419 krónur. Ég kváði auðvitað og hélt
að hann hefði mismælt sig. En nei nei hann endurtók
töluna 419 krónur. Ég hélt ég yrði
ekki eldri og spurði aumingjans drenginn hvort hann hefði sagt
rétt verð. Já já 419 krónur takk fyrir.
Ég rétti honum brauðið og sagðist ætla
að fara í aðra búð. Sama tegund af brauði
kostaði 159 krónur í Bónus þegar ég
fór þangað tveim dögum síðar. Ég
hefði sem sé næstum því getað fengið
þrjú brauð í Bónus fyrir eitt í 10-11.
Er þetta forsvaranlegt?
Tek undir með þeim sem hafa bent á
að tilgangurinn með því að styðja íslenska
framleiðslu er enginn ef íslenskar vörur hækka til
jafns við þær innfluttu. Hver er þá hagur
okkar neytenda af því að velja íslenskt? Og af
hverju hækka íslenskar vörur sem ekki innihalda erlent
hráefni? Er ekki bara verið að hækka íslenskar
vörur í skjóli hækkana á þeirri erlendu,
til hagsbóta fyrir kaupmenn? Kaupmenn sem koma fram við viðskiptavini
með hroka og yfirlæti og eins og þeir séu asnar,
eiga ekki skilið að verslað sé við þá.
Mæli með að viðskiptavinir séu á varðbergi
gagnvart slíkum óeðlilegum hækkunum og sniðgangi
þá kaupmenn sem stunda siðlausa viðskiptahætti.
Ólöf
(Nb. Það eru nú engin ný
tíðindi að 10-11 er svívirðileg okurbúlla.)
#1708
Ég fór í apotek í gær og ætlaði
að kaupa tannlím (fyrir falska settið mitt) en fékk
áfall þegar ég sá verðið. Í Lyf
og heilsu á Glerártorgi Akureyri kostaði 68gr túpa
– 2.928 kr -----í apotekinu í Hagkaupum á Ak kostaði
samskonar túpa-----1.889 kr. Þetta tannlím (FIXODENT)
var á verðinu 1.200 til 1.400 ‘i haust.
Guðrún
#1707
ÉG fór í Nýja kaupþing á mánudag
og ætlaði að fá nýjan lykill af heimabankanum
því minn dó eftir tveggja ára notkun,
bánkanir komu þessu á og vitið menn ég var
rukkuð um 500kr fyrir hann ég benti henni á að þetta
væri bara fjákúun af þeirra hálfu því
ég bað ekki um að þessu væri troðið
uppá okku ekki get ég notað heimabánka minn nema
að hafa þennan lykill, ég spurði líka
hvor það væri ætlast til að við ættu
samalykill alla tíð að það gæti ekkert komið
fyrir hann en það var lítið um svör, mér
var aftur á móti sagt það að það
ætti að fara að fynna uppá einhverju öðru
og hætt með þennan auðkennislykill þvílíkt
og annað eins ég mátti borga þessar 500kr ég
er líka alveg viss um það að það kosta ekki
500kr að framleiða þetta.
Ingibjörg
(10.12.08):
#1706
Ég fór til tannlæknis í dag Það
var önnur heimsókn af þrem við að rótarfylla
tönn sem kom bólga undir. Ég ætlaði
að borga þessar tvær heimsóknir í dag og
ég var að hugsa við afgreiðsluborðið áður
en kom að mér að vonandi ætti ég fyrir báðum
reikningunum og hugsaði fjandakornið það getur í
hæstalagi verið 15 til 20 þúsund alls, því
ég er með 75% örorku og fæ endurgreiðslu
frá Tryggingastofnun 75% af svokölluðu viðmiðunarverði.
En þegar afgreiðslukonan nefndi upphæðina þá
hló ég því hún var svo út í
hött: Rúmlega 37 þúsund sem kemur í
minn hluta að borga. Heimsóknin mín í
dag kostaði alls 24 þúsund - þar af á
ég að greiða rúmar 18 þúsund kr. og
Tryggingastofnun rúm 5 þúsund Og þetta
heitir að fá 75% endurgreitt. Ég gat auðvitað
ekki borgað nema fyrri reikninginn. Þvílíkt
okur og blekkingaleikur. Þetta var hjá Tannlæknastofunni
á Egilsstöðum.
Anna Hrefnudóttir
#1705
Fór í Krónuna í dag sem er nú
ekki í frásögur færandi nema hvað að ég
keypti 1 pakka af nuk snuðum (tvö í pakka). Verðið
sem var fyrir ofan pakkann merkti að þetta kostaði 765 krónur,
síðan þegar ég kem að kassanum og honum rúllað
í gegn kom að pakkinn kostaði 945 krónur. Ég
gerði athugasemd við þetta og fór afgreiðslustúlkan
og athugaði þetta. síðan greiddi ég það
verð sem á rekkanum stóð en greinilegt er að
allt er reynt til að auka ebitu eða veltu fyrirtækisins ef
þetta er stundað. Enginn baðst velvirðingar á
því að reynt var að bæta tæpum 200 krónur
við eina vörutegund.
Ómar Þ. Pálmason
#1704
Fór í Bónus um daginn og keypti léttar vínarpylsur.
Þær hafa sl. 2-3 ár kostað ca. 850 kr. kílóið.
Í haust hækkuðu þær í ca. 950 kr. Núna
kosta þær 1240 kr. kílóið. Okur! Var ekki
verið að tala um að kaupa íslenskt, er ekki nánast
allt hráefni í þetta íslenskt. Það
er helvíti skítt ef ,,þjóðin á að
standa saman" og svo er okkur fokkað af eigin fólki þegar
sverfur að.
Reynir
(09.12.08):
#1703
Fór í Lyf og heilsu í Keflavík áðan
og keypti 24 stk af Nicotinell Lakrids 4 mg, sem er álíka
mikið magn og 1 sígarettupakki (sem kostar um 660 kr í
dag) fyrir reykingamanneskju. Mér blöskraði
þegar ég greiddi rúmlega 1660 kr fyrir pakkann af tyggjóinu,
en í síðustu viku kostaði sami pakki rúmlega
1400 kr en í haust rúmlega 800 kr (fannst það meira
að segja vera hátt verð þá).... Rúmlega
helmingshækkun á vörunni á tæpum 4 mánuðum.
Ef maður lítur á peningahliðina við að nota
þetta hjálpartæki við að hætta reykingum
þá er þetta ansi letjandi þegar hægt er
að kaupa 2 og 1/2 sígarettupakka fyrir sama verð og 1 tyggjópakka
með 1-2 daga skammti af tyggjói. SVEKKELSI....
Helga Erla
#1702
Ég er að panta jólagjafir í netinu ein jólin
enn, enda búsett úti á landi. Ætlaði panta
vöru frá Elko sem er 4 kg. Við val á sendingarmöguleika
get ég annars vegar valið samdægursþjónustu
með Póstinum fyrir kr. 980 (aðeins í boði á
höfuðborgarsv.) og hins vegar að láta senda pakkann
á hefðbundinn hátt með Póstinum fyrir kr.
2.500 (allt landið). Það er því meira en tvöfalt
dýrara að senda pakkann nokkrum dögum seinna út
á land en að senda hann með hraðþjónustu
samdægurs innan höfuðborgsvæðisins. Það
kalla ég ansi slæman díl fyrir okkur landsbyggðarfólkið.
Esther
#1701 Vill benda fólki
á að fylgjast vel með verðmerkingum í búðum,
og þá sérstaklega vörum sem standa á brettum
og eru auglýstar á tilboði.
Fór í Krónuna um
helgina, sá þar Floridana appelsínusafa auglýstann
á 265 kr. Og svo Hello Kitty púða sem ég keypti
fyrir dóttur mina auglýstann á 995 kr.
Svo þegar kemur að því
að borga, þá kostar safinn 289, og púðinn 998.
Alltof algengt, og hvet ég fólk
til að skrifa niður verðin á öllu sem er keypt,
og bera svo saman við strimilinn sem kemur ú kassanum, því
þarna má spara nokkra hundraðkalla af viku matarinnkaupunum.
Svavar Þór Birgisson
#1700
Verð á spilinu Party og co
Bónus: kr 4685
Hagkaup: kr 5990
Toys'R'Us: kr 10.485
Er þetta hægt, ég meina ég
hélt að það væri falin myndavél þarna
í
leikfangabúðinni og einhver bara að
grínast með mig?
Sissú
#1699 Mig langaði
að segja þér frá atviki sem ég horfði
uppá um daginn þegar ég var stödd í Krónunni.
Fyrir framan mig í kassaröðinni var par sem var að
versla, þau höfðu skrifað niður á blað
hilluverð allra varanna sem þau voru með, samtals 10 stk.,
þegar þessu hafði verið rennt í gegnum kassakerfið,
báru þau saman strimilinn og blaðið þar sem
þau höfðu punktað niður hilluverðið og í
ljós kom að 8 vörur af 10 voru dýrari en hilluverðið
sagði til um, þetta er með ólíkindum, þau
fengu mismuninn greiddan tilbaka en svona tefur alla afgreiðslu mjög
mikið og svo gefa flestir sér ekki tíma í að
skrifa allt niður hjá sér, maður vill geta treyst
því að svona hlutir séu réttir, verslanir
hljóta að græða heilan helling í heildina víst
að þeir sjá sér ekki fært um að hafa
þetta rétt, þetta er ekki eina dæmið sem ég
veit um hjá Krónunni þar sem hilluverð og kassaverð
fara ekki saman. Kannski er þetta svona hjá fleiri verslunum
líka. Ég fór t.d. í Kringluna um helgina og
verslaði í 2 verslunum og í báðum verslunum
átti að rukka mig of mikið, í Eymundsson var bók
á tilboði sem ég keypti en tilboðsverðið
kom ekki fram á kassanum, ekki fyrr en ég benti starfsmanni
á hvað stóð á verðmiðanum á
bókinni, þá leiðrétti hún það
strax, hitt dæmið voru vitlaust verðmerktar buxur í
búðinni Sparkz. Mér finnst með ólíkindum
hvað verslanir leggja lítinn metnað í þessa
hluti, kannski er þetta bara útpælt hjá þeim.
Ein hneiksluð
#1698
Ég er í svona jeppabransa og mig vantaði nýjar
spindilkúlur í jeppann hjá mér (Jeep Cherokee).
Ég fór í Bílabúð Benna og
ath verðið hjá þeim það voru litlar 30.000
þúsund kr stk. SPICER heita þær og ég athugaði
verðið hjá Bílanaust sama gerð SPICER þar
voru þær á 4800kr stk = GEÐVEIKI. Langaði bara
að koma þessu á framfarir svo það verða
ekki fleiri teknir í þurt og ó smurt rassgatið
bakaríið.
Brynjar Traustason
(ATH: Í Bílabúð Benna
fást Spicer spindilkúlusett í Jeep Cherokee og Jeep
Grand Cherokee árgerðir 1984 til 2000 á 10.628 kr.
Sama sett hjá N1 kostar 10.062. Ef um yngri árgerð en
2000 er um að ræða þá er Bílabúð
Benna ekki með Spicer spindilkúlusett. Ég óska
því eftir því við þig að þessi
færsla verði fjarlægð af netinu eða leiðrétt.
Bilabud Benna hf / Baldvin Elíasson)
#1697
Á dögunum keyptum við fisk, sem okkur var sagt að væri
glænýr, í Melabúðinni.
Sem verið var að elda fiskinn barst grunsamleg
lykt um húsið. En vegna þess að forsvarsmenn þessarar
rómuðu verslunar í Vesturbænum höfðu fullyrt
um gæði vörunnar, þá var haldið áfram
að elda. En þegar að því kom að gæða
sér á réttinum, þá kom í ljós
að fiskurinn var úldinn og ekki mönnum bjóðandi.
Til að láta reyna á hversu
neytendavæn þessi ágæta verslun í Vesturbænum
væri, tókum við fiskinn með okkur til verslunarmannanna
aftur og báðum kurteislega um að okkur yrði bætt
þessi óæta vara og annaðhvort endurgreitt verðið,
eða nýr fiskur látinn í staðinn .
Annað var nú ekki farið framá
til að bæta skaðann og leiðindin, en vissulega var búið
var að leggja vinnu og efni í eldamennskuna.
En skemmst frá að segja, þá
létu verslunarmenn í Melabúðinni sig hafa það
að bæta gráu ofaná svart.
Þeir fóru með fiskinn í
bakherbergi og eru taldir hafa kjamsað á afurðinni og komu
til baka og fullyrtu að ekkert væri athugavert við vöruna
og voru státnir með þá afstöðu að
ekki þyrfti að aðhafast neitt til að bæta það
sem við vesælir viðskiptamenn töldu vera skaða.
Hvað finnst þér um þessa
frammistöðu?
Árni
#1696
Einhverntíma las ég einhversstaðar að auglýsendur
yrðu að
geta staðið við fullyrðingar
í auglýsingum.
Hakaup hefur fyrir nokkru opnað stóra
og glæsilega verslun í Garðabæ,
en þar er yfitleitt fátt um viðskiptavini.
Ég ætla að segja þér frá reynslu
minni um verðlagningu á þessum
bæ.
Skömmu eftir að verslunin opnaði
ætlað ég að kaupa 1/4 dós af Ora grænum
baunum. Ég rak þá augun í
undarlega verðlagningu. Hálfdós kostaði kr.
129.-
en kavartdósin kr. 134,- (Svona
dós kostar kr. 54,- í Bónus í Hafnarfirði).
Ég benti ungum starfsmanni verslunarinnar
á þetta og hann kvaðst ætla að athuga málið,
því þetta hlytu að vera
mistök. Hann hvarf svo á braut, en kom að vörmu
spori til baka og
sagði að þetta væri rétt,
"þetta ætti að vera svona".
Þann 27, nóv. s.l. ætlaði
ég að kaupa nokkra pakka af "Rubin Kenya sælkerakaffi",
en fannst
verðið grunsamlega hátt svo ég
lét mer nægja að kaupa einn pakka, sem kostði kr.
565,-.
Daginn eftir keypti ég sömu vöru
í Fjarðarkaupum á kr. 329,- Verðið í
Hagkaupum er semsé
rúmlega 72% hærra.
Ein ferð betra verð - Ha!?
Ragnar
#1695
Vildi bara benda á að Kaffihúsið á Bifröst,
þ.e. Háskólans á Bifröst hefur ekki hækkað
sitt verðlag á bjór í háa herrans tíð
og býður upp á hálfan lítra af bjór
á litlar 450 kr. Það er annað en í Reykjavík!
Svo vil ég líka benda á
að Kaffihúsið á Bifröst býður upp
á hádegismat á hverjum virkum degi þar innifalið
er súpa, heitur matur og salatbar á litlar 990 kr. Sem sagt
alveg hellingur af mat fyrir sanngjarna upphæð.
Því segi ég. Lengi lifi kaffihúsið
á Bifröst.
Finnbogi Vikar, viðskiptalaganemi á
Bifröst
#1694
Mig langar að benda á mjög ódýran og góðan
grænmetisstað. Á grænni grein, sem er staðsettur
í Bláu Húsunum við Faxafen.
Verðið hefur lækkað og er meðal
annars Réttur dagsins sem er samansettur af tveimur heitum réttum
Ísl.bankabyggi og salati, á 1000 kr. og er mjög vel
útilátið.
Hægt er að taka með sér
eða borða á staðnum.
Jóhanna
#1693
Fyrir nokkru síðan þurfti ég að auglýsa
íbúðina mína til leigu. Ég veitti
athygli nýju fyrirtæki sem auglýsir fríar auglýsingar
bæði fyrir leigjendur sem leigusala. Þetta er skýrt
tekið fram og feitletrað á heimasíðu þeirra
(Leiga.is).
Í einfeldni minni skráði ég
íbúðina hjá þeim og komst að því
núna um mánaðamótin að mér hafði
borist reikningur frá fyrirtækinu upp á 4.999 kr.
Þegar betur er að gáð er skráningin aðeins
frí fyrstu 10 dagana og eftir þann tíma þarf
að greiða. Þetta er ekki það sem kemur fram
í auglýsingu þeirra og þarf maður að
lesa smáa letrið til að láta ekki veiða sig í
gildruna. Ég er búinn að hafa samband við Neytendastofu
og kannast þeir vel við málið, en geta lítið
gert þar sem "smáa letrið" er á heimasíðu
þeirra.
Þetta eru augljóslega blekkingar
og verið að hafa fé af fólki.
Mér finnst það skylda mín
að koma þessu á framfæri, þar sem mikið
framboð er á húsnæði um þessar mundir
og tekið getur drjúgan tíma fyrir leigusala að finna
leigjendur. Á meðan græða þeir á
Leiga.is.
Jóhannes Ingimundarson
#1692 Ég
fer 1 sinni í mánuði í Garðheima og
kaupi 13 kg. poka af hundamat. Fyrir 2 mánuðum borgaði
ég rétt rúmar 8.000 kr fyrir pokann. Fyrir mánuði
kostaði hann rúmar 10.000 kr sem mér þótti
nú alveg ásættanleg hækkun. En í gær
þegar ég fór að kaupa pokann blöskraði
mér allsvakalega - 17.450!!! Ég dauðkvíði
næstu ferð, það verður gaman að sjá
hvað hann mun kosta þá! Til gamans má geta að
eins poki ásamt geymslutunnu úr járni kostar út
úr búð í Bretlandi með fullri álagningu
og öllu, 39 pund eða 7.000 miðað við gengið í
dag.
Óskar nafnleyndar
(07.12.08):
#1691 Ég
vildi bara deila með ykkur reynslu minni, ég og maðurinn
minn fórum á jólahlaðborð áRauðará
á sunnudaginn síðasta og fengum dýrindis mat og
góða þjónustu, en það sem var svo toppurinn
á öllu var að það er 2 fyrir 1 á sunnudögum,
kostar fullt verð 6900 á mann og þarna borgum við
tæp 3500 á mann í stað 6900 fyrir þetta flotta
jólahlaðborð. Vildi bara koma þessu á framfæri
fyrir þá sem langar að skella sér á jólahlaðborð
á kreppuverði
Rebekka
#1690 Mig langar
að benda fólki sem er að spá í að kaupa
sér raftæki fyrir jólin að skoða Heimilistæki
og Sjónvarpsmiðstöðina (sömu eigendur og sama
verð í báðum búðum). Ég nefnilega
var að vinna í Elko og sumar vörur eru mun dýrari
þar en í Ht og Sm.
Dæmi er 32" Philips sjónvarp sem kostar 250.000 í
elko en 200.000, öll Philips sjónvörpin eru ódýrari
í Ht og Sm en í Elko nema 2-3 sem kosta það sama.
fyrrv starfsmaður elko
(ATH: Ég vidi bara benda á td. Færslu nr.1690
kemur ekki undir nafni og er greinilega bitur fyrrum starfsmaður Elko
og getur greinilega ekki staðfest eða komið með nein raunveruleg
dæmi um mun á þessum búðum. Ekki láta
glepjast af hefndarhug og órögstuddum athugasemdum, það
gerir þennan annars frábæra vef ótrúverðugan
í mínum augum og annara.
Kjartan)
#1689 Á
HP prentara og það er sagan endalausa hvað þessi blek
hylki eru dýr í alla bleksprautu prentara.
Kaupi þetta reglulega og hef orðið var við miklar
hækkanir.
Nokkur verð á HP nr. 21 svart blek (C9351A):
A4 þann 20/10/2008 - 2.990 kr.
A4 þann 04/12/2008 - 4.990 kr.
Þetta mun vera um 67% hækkun á rúmum mánuði.
Penninn Eymundsson þann 22/09/2008 - 2.150 kr.
Penninn Eymundsson þann 31/10/2008 - 4.430 kr.
Þetta mun vera um 106% hækkun á rúmum mánuði.
En rakst svo á nýja netverslun hjá Opnum Kerfum
sem heitir "OK beint". Þeir hafa lengi þjónustað
fyrirtæki í gegnum vefverslun, en í byrjun desember
byrjuðu þeir að selja til einstaklinga líka.
Þar eru eðlileg verð sem slá A4 og Pennanum-Eymundsson
auðveldlega við.
Í tilefni af opnun vefverslunarinnar er frí heimsending
í desember, en einnig getur maður sótt vöruna á
lager þeirra.
En allavega þá fékk ég þessi blekhylki
í OK beint á aðeins 2.495 kr.
Mæli með OK BEINT!
Gísli
(ATH: Varðandi færslu nr. #1689 á okursíðunni
frá 7.12.08, sem snýr að verði á blekhylkjum
í prentara, þá langar mig að segja frá minni
reynslu. Mig vantaði litablekhylki í HP prentara 720C. Ég
fór að grennslast fyrir um verð á hylkinu og komst
að eftirfarandi:
computer.is 3.705 kr.
Tölvulistinn 5.490 kr.
OK beint
5.666 kr.
Penninn
7.750 kr.
A4
8.490 kr.
Hins vegar verð ég að geta þess að þegar
til kom, var þetta tiltekna blekhylki uppselt í bili á
computer.is en fékkst í Tölvulistanum. En verðmunurinn
er ógurlegur og þetta hylki er allavega ekki ódýrast
á OK beint.
Sigurður Einarsson)
(06.12.08):
#1688 Ég
get ekki orðaa bundist. Var að koma úr vikulegri Bónusferð
og eins og undanfarið þá var verð
matarkörfu vikunnar hærra heldur en vikunnar á undan.
Ég lagðist yfir
strimilinn og fékk nett sjokk þar sem ég sá
að Heimilisbrauð frá Myllunni er
verðlagt á 224 kr. stk. Þar sem ég er farin
að safna strimlum þá kíkti ég á
strimil dagsettan 21. Nóvember og þá hafði
ég verið að borga fyrir brauðið
137 kr. Hvað er í gangi hér? Ég veit að
hveiti hefur hækkað en að brauð hafi
hækkað um 87 kr og það á tveimur vikum er
út í hött. Brauðið var komið í
jólaumbúðirnar og mér er spurn getur verið
að það hækki verðið svona mikið?
Ég trúi því ekki að það sé
hægt að kenna hveiti eingöngu um.
Mín niðurstaða. Tékka á brauðvél.
Íris
(Nb. Nú þegar krónan "er að styrkjast" hlýtur
allt að lækka með ógnarhraða. Er það
ekki annars?!)
#1687 Það
fer ekki fram hjá neinum að verð á vörum hefur
hækkað verulega undanfarið ár. Nýjasta tíska
starfsmanna í verslunum er að nota afsökunina "gengið
er svo óhagstætt". Það má vera að það
hækki vöruverð að einhverju leiti en sú afsökun
afsakar ekki okur. Í dag fór ég og ætlaði
að kaupa gult blek (CLI-8Y) í Canon IP4300 prentara, en það
eitt sex hylkja í prentaranum. Ég fór í Office1
í Kringlunni og þar bauð starfsmaður mér þetta
hylki á 3290. Mér féllust hendur, og skammaði
starfsmanninn fyrir að nota „gengis“ afsökunina. Klukkustund síðar
fór ég í ELKO í skeifunni og keypti sama hylki
á 1999.
Þess má geta að samskonar hylki kostuðu hafa hækkað
undanfarið eitt og hálft ár úr 1190 í 1590,
síða 1790 og nú loks 1990, en það má
kannski skrifa á raunverulega hækkun innkaupsverð.
Óskar Þór
#1686 Ég
var að koma úr Apótekinu, nánar tiltekið,
Lyf
og heilsu. Ég þurfti að að kaupa astmalyf sem
heitir Symbicort .Það kostaði 3400.Ég keypti líka
pakka af Strepsil, sem kostaði tæpar 900 krónur. Þar
sem mér fannst brjótsykurspakkinn dýr ákvað
ég að forvitnast og hringdi í Lyfjaver, sem ég
hafði heyrt að væri afar sanngjarnt fyritæki .Þar
kostaði astmalyfið 1600 kr og strepsilið 690.Í Lyf og
Heilsu rak ég líka augun í Jhonsson barnaolíu
sem ég keypti nýlega í Bónus á 490 en
sama olía kostaði 899 í Lyf og Heilsu. Sem sagt hér
eftir versla ég ALDREI oftar í Lyf og Heilsu heldur fer
í Lyfjaver!
Vala
#1685 Mig langar
bara til að láta vita af verði á osti sem ég
rak augun í í Hagkaupum í gær. Mig vantaði
ost, sem ég kaupi yfirleitt bara í lágvöruverslunum
en þar sem ég var þarna kíkti ég á
verðið. Ég sá þá danskan ost sem ég
keypti yfirleitt þegar ég bjó í Danmörku.
Þessi ostur heitir Havarti og er yfirleitt ódýrasti
osturinn í búðunum í Danmörku. Mig minnir
þó að hann hafi verið kominn upp í 18 - 20
Dkr í vor þegar ég keypti hann síðast. Í
Hagkaupum kostaði hann um 1200 kr.?! Séu þessar 20 dönsku
krónur umreiknaðar í íslenskar, samkvæmt
genginu í dag, gerir það um 500 íslenskar krónur?!
Hér erum við að tala um ákaflega óeðlilegt
verð! Ég verð að játa að ég fór
nú bara að hlæja og velti því fyrir mér
hvort Hagkaup væru farin að flytja ostana frá Danmörku
inn á Saga Class?
Erla Karlsdóttir
(Nb. Er ekki einhver geðveikur tollur á þessu til
að passa að íslenskir ostaframleiðendur fari ekki í
hausinn?)
#1684 Í
dag barst inn um lúguna hjá mér greiðsluseðill
vegna bíls sem við hjónin ökum á og höfum
fengið afnot af í gegnum Glitni. Við höfum borgað
af þessum bíl reglulega og ekki komið til vanskila. En
svo gerist það að greiðsluseðillinn dettur inn um
lúguna 2 DÖGUM EFTIR GJALDDAGA!!!!
ÉG ER BRJÁLUÐ! Er þetta ný leið
til að auka tekjur bankanna – Þetta get ég ekki sætt
mig við. Á engan hátt.
Nú bið ég Nýja Glitni að útskýra
hvernig málum er háttað við útsendingu greiðsluseðla
– af hverju er þessi seinagangur og eiga viðskipta“vinir“ þetta
á hættu: Að hafi þeir einhverra hluta vegna ekki
aðgang að þeim heimabanka þar sem greiðsluseðillinn
kemur fram (mér dettur í hug að tölvur á
heimilum geta bilað eða það að fólk notar
kannski greiðsluseðlana af því að það
styrkir bankana um 275 kr greiðslugjald og vill fá eitthvað
á móti í pósti) að þá sjái
bankinn sér leik á borði og sendi „bara örlítið
of seint – fólk er hvort sem er öllu vant í dag“. Ég
kalla þetta hins vegar að æra óstöðugan
á föstudegi í lok vinnuvikunnar.
Seðillinn barst ekki í tíma, það er hinn
eiginlegi greiðsluseðill. Póststimpillinn á bréfinu
er 3.12. – það var í fyrradag, vinnubrögðin eru
ólíðandi! Pósturinn hefur tekið 2 daga í
að koma bréfinu í hús og væntanlega telst
það eðlilegt í desember hjá póstþjónustunni!
Auður
#1683 Nú
þegar flestar húsmæður þessa lands eru á
kafi í jólabakstri langar mig að benda á það
sem ég kalla LAUMUOKUR. Þannig er að ég vikta allt
í bakstur og er búin að reka mig illa á að
ekki þýðir að nota mælistikuna á smjörlíkisstykkjunum
því öll smjörlíkisstykki vega um 450 gr en
eru seld sem 500gr. Vildi bara benda á þetta þar sem
stykkið af Ljóma smjörlíki kostar frá 140
til 160 kr (ódýrast í Bónus á 141kr)
Auglýsi hér með eftir öllum grömmunum sem er
búið að snuða mig um.
Hildur Kolbeins.
(05.12.08):
#1682 Langar að
benda á verslun sem er ekki með okur... Fann bara engan hentugan
stað til að koma því á framfæri annan
en hér.
En þannig er að ég fór í Snyrtivöruverslunina
HYGEA
í Smáralind, vantaði góða gjöf sem kostaði
ekki mikið.
Ég sá þá þessa frábæru
trefla
sem eru við innganginn á búðinni. Starfsmaður
búðarinnar bauð góðan daginn og
tilkynnti mér að tréflarnir kostuðu 1500 krónur....
sama verð í áraraðir.
Að auki tilkynnti hún mér að það væru
væntanlegir nýjar útgáfur af treflunum og að
þeir myndu líka kosta það sama.
Þetta þykir mér góð kjarabót í
öllu okrinu og verðhækkunum í dag. Mæli því
með þessarri verslun.
Hildur Ingadóttir
#1681 Í
dag 4.12 er heilsíðuauglýsing í Morgunblaðinu
frá Hagkaupum þar sem þau
auglýsa jólin á láni. Það
eru gefin upp þrjú dæmi og hvað muni
kosta að borga
af þeim. Þetta er eflaust góður kostur fyrir
einhverja, en ég er ekki þar með
talin. Að gamni prófaði ég að reikna fyrsta
dæmið til að athuga hvort þetta
væri rétt. Maður er jú alltaf að spá
í krónurnar þessa dagana. Dæmið hljómar
svona 40.000 / 6 = 6.870. Þegar ég slæ þessu
inn á reiknivélina fæ ég út að
afborgunin eigi að vera 6.667 kr. En svo er þarna 3% lántökugjald
sem bætist á
þessi 40.000 og er það þá 1.200 kr. sem
bætist þarna ofan á. Dæmið ætti þá
í
rauninni að vera 41.200 / 6 = 6.867. Afborgunin ætti semsagt
að vera af þessu
6.867 kr. en í staðinn segja þau að það
eigi að vera 6.870. Það er ALLTAF verið
að kroppa krónurnar af fólki!!!
Dæmi tvö er svo rétt reiknað hjá þeim.
60.000 + 1.800 / 6 = 10.300 kr.
En ekki þriðja dæmið.
100.000 + 3000 / 6 = 17.167 kr. ætti það að vera,
en í staðinn er líka búið að færa
þetta upp í næsta tug, 17.170 kr.
Helga
(Nb. 18 kall extra á kúnna. Safnast þegar saman
kemur, 72000 ef 4000 manns láta Hagkaup lána sér jólin.)
#1680 Var í
10-11
í Hömrunum í Grafarvogi í gærkvöldi
og ætlaði að kaupa mér ítalska grýtu
í pakka sem kostar venjulega um 300kr
Þá var búið að hækka þetta
upp í 680 kr……………Þetta er algjört okur, trúi ekki
að þetta sé leyfilegt. Mátti til að láta
vita af þessu
Málfríður Gestsdóttir
#1679 Keypti tvo
yddara í Mál og menningu á Laugavegi. Einn svona
venjulegan, sem mörg grunnskólabörn nota, með harmónikkubelg
(reyndar hægt að ydda bæði stóra og litla blýanta/liti),
hann kostaði 860. Keypti svo annan sem ekki var með ruslabelg en
hann er reyndar fyrir örvhenta, sá kostaði 960 kr. Er þetta
ekki okur? Þegar ég var að skoða yddarana leitaði
ég að verðmerkingu en hún var hvergi, sá reyndar
að búið var að klippa af kassanum sem yddararnir voru
í, trúlega hefur verðið staðið þar.
Hefði aldrei keypt yddarana ef ég hafði vitað hvað
þeir ættu að kosta. Þetta hlýtur að vera
300% hækkun frá því í haust.
Björn
#1678 Ég
var í smá jólagjafaleiðangri í dag og langar
að koma með smá input í þessa síðu.
Ég byrjaði á því að fara í toys
r us í smáranum (ég veit, ekki góð
byrjun), og skoðaði spilið partý og co, extreme. Þar
kostaði spilið tæpan 11þús (e-ð í
kringum 10.700), svo voru fleiri spil eins og Scrabble og Labyrinth (völundarhúsaspilið)
á 8 þúsund. Svo sagði mamma mér að Bónus
væri líka að selja spil, svo ég rölti yfir
bílaplanið í smáranum og kíkti í
bónus. Þar keypti ég spilið á aðeins
4700kr. Svo ég vil bara kvetja fólk að skoða verðmun,
ég
sparaði rúmar 5000 krónur á því að
labba tæpa 100 metra!
Svo er það annað. Þó ég sé
almennt ánægtð með Europris og oft gert ágætiskaup,
þá var ég að skoða leikföng þar
líka eftir þetta Toys R Us rugl. Þar sá ég
að mörg leikföngin voru á tilboði. Þegar
ég lyfti upp tilboðsmiðanum sá ég að mörg
verðin voru dýrari en áður! Ég var ekkert
að skoða alla búðina, en ég lyfti upp nokkrum
miðum og ákvað að skella mynd af þeim og sendi
hér með.
Þegar ég er að spá í vöru, en alls
ekki viss hvort ég ætti að kaupa, og á jafnvel
eftir að gera verðsamanburð, en sé að hún
sé á tilboði, þá yfirleitt hugsa ég
"Ef ég tek hana ekki núna á ég örugglega
eftir að sjá eftir því - hún er nú
einusinni á tilboði! fæ hana örugglega ekki ódýrari
seinna eða annarsstaðar", og ég býst við að
margir hugsi það sama, grípi vöruna bara því
hún er á tilboði. En það er greinilegt að
maður þarf að skoða þetta nánar! Maður
á ekki að láta það hafa svona áhrif
á sig að það standi "tilboð" fyrir ofan verðið,
því það er greinilega ekkert að marka.
Bryndís Björk
#1677 Ég
var að skoða jólagjafir um síðustu helgi fór
í Kúnigúnd í kringluni og var
að skoða Rosendahl jólaóróa þar kostar
hann 4.690 kr fór síðan í Casa þar sem ég
fékk hann á 2.950 þetta finst mér mikkil verðmunur
á sömu vöruni.
Karl
#1676 Ég
fékk í brúðkaupsgjöf gjafa VISA kort frá
Kaupþing.
Þannig er nú málið að ég er að
fara af landi brott til að vinna og
ætlaði þá bara að fara í Kaupþing,
bankann sem gaf út þetta VISA kort,
og fá peninginn.... því þeta er jú
VISA kort sem á að gilda sem
slíkt.
Þegar í bankann var komið var tjáði gjaldkerinn
mér að ekki væri hægt
að taka út peninginn af kortinu... þetta væri
jú VISA kort. Ég sagði
henni að ég gæti tekið út pening út
af VISA kortinu mínu. Hún jánkaði
því og sagði þá að þetta væri
eins og debet kort. Ég sagði henni að ég
gæti tekið út pening með debet kortinu mínu.
Þá hugsaði hún sig um í
smá stund og sagði svo að þetta væri hugsað
eingöngu til vöruskipta.
Ég sagði henni að þetta gjafaVISAkort hefði
verið keypt með pening í
Kaupþing með peningum, það væri ígildi
peninga, og það alls staðar
NEMA í bankanum sem gaf það út. Hún
varð háf vandræðaleg og sagði að
þetta væri bara svona. Ég spurði hvort ég
gæti fengið að tala við
einhvern um þetta og svarið var hreint og beint nei.
Ég stórlega efast um að þetta sé löglegt.
Ég er með 30.000 krónur sem
ég á að geta notað alls staðar í heiminum
nema í bankanum sem gaf það
út. Mig vantar bara peninginn af þessu korti því
ég hef engan áhuga á
að framvísa gjafa VISA korti sem er með áprentuðu
VISA númeri (ekki
upphleyptu) og Kaupþing logoinu einhversstaðar í útlöndum.
Ég er stórlega hneikslaður og er að spá
í að tala við Neytendasamtökin
út af þessu.
Sigurjón
#1675 Þetta
flokkast tæknilega ekki sem okur en það er það
samt næstum því. Þannig er mál með
vexti að ég fór í byrjun sumars með fjölskylduna
til Spánar í sumarfrí og eitt af því
sem við gerðum var að skella okkur í dýragarðinn
Terra Natura við Benidorm, nánar tiltekið 8. júní
2008. Aðgangseyrir fyrir 2 fullorðna og 2 börn var 68 evrur
og finnst eflaust flestum nóg um, en gengið þá
var í kringum 120 ISK vs. 1 EUR og upphæðin í íslenskum
krónum ca. 8.160,-. Nú ber svo við að ég er
að fara yfir VISA yfirlitið mitt í nóvember og rekst
þá á erlenda færslu frá 5. nóvember
2008 upp á 68 evrur og hún er innheimt á genginu 168,79
eða íslenskar krónur 11.477,-!
Ég hugsa auðvitað að nú sé verið
að svindla á mér og verið að rukka aftur fyrir
þessa færslu frá því í júní,
skoða yfirlitið frá því þá en
finn enga slíka færslu. Sem ábyrgur neytandi hef ég
samband við Valitor og mér ráðlagt að senda inn
formlega kvörtun, henni verði svo svarað álíka
formlega. Nú var svarið að berast frá Valitor og
viti menn. Söluaðilar hafa 180 daga til að skila inn
færslum og ekkert hægt að gera því miður
!! Og ég sit upp með mismuninn krónur 3.317,-.......
en get líklega dregið frá vexti af þessum 8160
krónum sem ég lagði aldrei út fyrir á sínum
tíma. Það myndi gera miðað við 20% yfirdráttarvexti
heilar 136 krónur á mánuði, (vona að ég
sé að reikna rétt). Ég vildi bara vekja
athygli á þessu því ég held að fólk
geri sér almennt ekki grein fyrir þessu. Þetta mætti
kalla gengisáhættu í lagi.
Axel Hrafn
(Nb. Ef maður er Íslendingur er maður þá
ekki í stöðugri gengisáhættu? Ég myndi
halda það!)
(03.12.08):
#1674 Mig langar
að benda lesendum á að fylgjast vel með reikningum frá
einu
mesta
okurfyrirtæki landsins, Símanum. Ég fór
fyrir rælni að skoða reikninga frá þeim, þar
sem mér þótti ég rukkaður um ansi háa
upphæð. Ég er með 4 GB niðurhal í áskrift
og halaði niður 1,4 GB í október. Síminn sendir
mér reikning og rukkar mig um tæp 1,4 GB í umframmagn,
sem kostar hvorki meira né minna en 3.300 krónur. Ég
hringdi í þjónustuver og kona þar sagði að
ég yrði að borga reikninginn og svo fengi ég kreditreikning
frá Símanum, ,,ef” þetta væru mistök. Ég
benti á að það væri ekkert ef, á þeirra
eigin þjónustuvef væri tekið skýrt fram og
sundurliðað að ég halaði aðeins niður broti
af samningsmagni, 1,4 GB af 4. Samt sem áður sagði þjónustukona
þessi að ekki væri hægt að afskrá reikninginn
og búa til nýjan, þar sem einhverjir kauðar þyrftu
að kanna málið, eins og það væri eitthvað
til að kanna! Nú þarf ég s.s. að borga fjandans
reikninginn af því gjalddagi er í dag, og vona að
þetta gróðafyrirtæki sendi mér kreditreikning.
Ég hvet alla til að fylgjast mjög vel með reikningum
frá Símanum, þetta er ekki í fyrsta sinn sem
ég lendi í rugli með þjónustu fyrirtækisins.
Helgi
P.s., hvernig er annars reynsla manna af net- og símasamningum
við Tal og Vodafone? Er það rétt sem maður heyrir
að hraðinn sé minni á tengingum í þeim
áskriftum, alltaf eitthvað vesen? Glaður vildi ég
frekar eiga viðskipti við þau fyrirtæki, hef fengið
mig fullsaddan af Símanum.
(ATH: Fyrir mörgum árum síðan lenti ég
í því sama og sá sem sendi inn okur nr. 1674.
Í því tilfelli neitaði ég að borga enda
augljóst að um rangan reikning væri að ræða
og ég samþykkti ekki að borga rangan reikning. Mér
var jú sagt að ekkert væri hægt að gera í
þessu en ég þrjóskaðist við og fékk
að endingu mínu framgengt, meðal annars eftir umræðu
um óeðlilega viðskiptahætti, siðleysu og þar
frameftir götunum. Málið er, að fyrirtækjum er
ekki stætt á að láta þig borga rangan reikning,
og ef þeir eru með hótanir getur þú a) farið
framá að fá afrit af samtalinu sem þú átt
(mig minnir að öll símtöl séu tekin upp og
geymd í þrjá mánuði), b) talað við
næsta yfirmann eða c) tilkynnt fyrirtækinu að þú
ætlir að senda kvörtun á Neytendastofu. Ef þér
finnst þú vera beyttur óréttlæti farðu
þá ALLTAF fram á skriflegan rökstuðning frá
fyrirtækinu sem þú átt í útistöðum
við, og farðu einnig framá að þeir vísi
í lagalegan texta. Það auðveldar þér
leitina á althingi.is ef þú ert í vafa um eigin
rétt ;)
Kv. HA)
(ATH: Í sambandi við færslu númer 1674 vil
ég koma smávegis
athugasemd varðandi hið ágæta okurfyrirtæki,
Símann.
Ég kaupi mér Sony Ericsson síma á c.a
50 þ í apríl. Ég nota símann, bara
eðlileg notkun í gangi. í júlí bilar
helvítis tækið. Þ.e ég get hringt og
aðrir geta hringt í mig en það er bara ekkert
samband á milli þ.e
viðmælandi minn heyrir ekki í mér en ég
heyri í viðmælanda mínum.
Ég fer í Símann með tækið í
viðgerð. Þar tekur á móti mér frekar
dónaleg
stúlka. Ég gef upp allar upplýsingar og hún
segist ætla að hafa samband
við mig. En bíddu nú við, ég er að
koma með bilaðan síma í viðgerð, fæ
ég
ekki lánssíma? Nei það er ekki stefna fyrirtækisins
að lána síma til
viðskiptavina. Ég gaf mig ekki og það endaði
með því að ég fékk eldgamlan
sony ericsson hlunk að láni. Þegar ég hringdi
úr honum í fyrsta sinn
drapst helvítis síminn. Ég reyndi að hlaða
hann en allt kom fyrir ekki.
Ég fer og segi frá raunum mínum og spyr hvort
þeir sjá sér nú ekki fært að
láta mig hafa annan síma. Nei var svarið. Ég
fór í farsímalagerinn og
keypti þar ágætan nokia síma fyrir 2.990
krónur.
Svo líður og bíður og það líða
4 vikur og ég heyri ekkert frá Símanum.
Þannig að ég fer á sama staðinn og ég
hafði keypt símann. Heyrðu þá höfðu
þeir gleymt að senda símann í viðgerð,
stelpan var farin í frí og það
kannaðist enginn við það að hafa tekið
á móti símanum. Minn var ekki
sáttur og bað um yfirmann. Yfirmaðurinn hringdi á
nokkra staði og loks
fannst síminn. Hann hafði verið sendur í
verslun Símans í Smáralind.
Fyrst fór hann í Tækjavörur og síðan
í Smáralindina. Greiningin var ljós,
rakaskemmdir ekki í ábyrgð. Ég spyr hví
ég hafði ekki verið látinn vita?
Starfsmaður Símans í Smáralind tjáði
verslunarstjóranum/yfirmanninum að
þeir í tækjavörum höfðu reynt að
hringja nokkrum sinnum en ég svsraði
aldrei. Í hvaða númer? Nú, í farsímanúmer
viðkomandi. Sem stemmdi. En nei
enginn hafði reynt að hringja í það númer.
Þarna var ég orðinn nokkuð pirraður. Og
spurði hvað viðkomandi yfirmaður
gæti gert fyrir mig. Fyrst vildi hann ekkert gera. Ég
gaf mig ekki og
ítrekaði beiðni mína um að fá nýja
vöru. Tja, ég get boðið þér annan síma
á skal ég segja 15% afslætti. Ég átti
ekki til orð svo ég labbaði út.
Ég hafði samband við yfirmann viðkomandi verslunarstjóra
til að kvarta.
Eftir mikið þref og þras féllst sá
maður á að endurgreiða mér helming af
andvirði símans.
Sama dag sagði ég upp öllum mínum viðskiptum
við fyrirtækið og fór í
viðskipti hjá Vodafone. Þar er viðskiptavinurinn
einhvers virði. Ekki hjá
símanum. Þar þarf maður aldrei að bíða
eftir þjónustu. Þar þarftu aldrei
að bíða í 30-40 mín eftir að einhverjir
skólakrakkar afgreiði þig. Þar
ertu afgreiddur strax.
Fyrir mér má Síminn fara á hausinn.
Það mun enginn koma til með að sakna
þeirra.
Ég ráðlegg viðkomandi að leita réttar
síns, farðu í yfirmann
þjónustuversins, sendu póst, vertu ákveðinn
en ekki dónalegur. Ekki gefast
upp. Svona þjónusta á ekki að líðast.
Gangi þér vel!
Nafnleynd)
#1673 Lactacyd
fljótandi sápa án ilmefna, 250 ml brúsi.
Kostaði núna rétt áðan 996 kr. í Lyfjum
og heislu í Kringlunni. Nokkra metra frá er Hagkaup (ekki
ódýrasta búðin í bænum) með nákvæmlega
sama brúsa á 599 kr. Fyrr má nú aldeilis fyrrvera!
Ívar Pétur Guðnason
#1672 Afrit sent
Okursíðu: Ágæta Stöð 2
Ég segi hér með upp áskrift minni að rásum
ykkar frá og með 4 desember, sem ég hef greitt fyrir.
Ekki rukka kortin eftir þetta.
Ástæðan er sú að móttöku skilyrði
eru gjörsamlega óásættanleg hér í
Grímsnesinu. (Rás U26 í dag)
4 afruglarar, ótal símtöl til þjónustumiðstöðvar,
missti af lokaþætti Dagvaktarinnar að mestu (punkturinn
yfir i-ið).
Bréf til ykkar og Sýnar, voru ekki svarað og alltaf
þegar hringt er er ég beðinn um að endurræsa
og prógrammera að nýju þó að ég
geri það ávallt áður en ég hringi og
læt vita af því.
Bréf mitt um að ég ætti rétt á
endurgreiðslu var ekki svarað en þjónustufulltrúinn
sagði mér í símanum að lesa samninginn, að
þið bæruð ekki ábyrgð á utanaðkomandi
áhrifum. Annar fulltrúi ykkar tjáði mér
daginn áður að vinna væri hafin við sendinn? (Ykkar
ábyrgð, greinilega)
Ég hef í hyggju nú eftir áramótin
að senda fyrirspurnalista til allra heimila hér í Grímsnesinu
og athuga ástandið, í framhaldi afþví munum
við skoða okkar réttarstöðu.
Halldór Ísleifsson
#1671 Okur í
Eymundsson!
Var að skoða spil fyrir dóttur mína í jólagjöf.
Fann skemmtilegt íslenskt spil sem að var gefið út
fyrir síðustu jól og heitir Myndalottó. Í
A4 á Skemmuvegi kostar þetta spil 2495 kr. Nákvæmlega
sama spil kostar 4645 kr. í Eymundsson Hallarmúla.
Þetta kalla ég ofur-okur!! Í Eymundsson er einnig verið
að selja jóladagatal Sjónvarpsins á 890 kr. en
í pósthúsum bæjarins er sama dagatal selt á
650 kr. Legg til að fólk hætti að eiga viðskipti
við Eymundsson okurbúllu!
Einn neytandi í sjokki, Guðrún
#1670 29.11 2008
kostar coca cola light 2L. 540 kr.og Doritos Nacho Chees 735kr. pokinn
í N1 í Vík Mýrdal.
Dóra
#1669 Datt í
hug að koma með smá ábendingu um gífurlegan
verðmun á vöru sem ég keypti um daginn. Þannig
er mál með vexti að ég var að versla í
versluninni Þín Verslun á Seljabraut og keypti
þar fjári góðan ís, svokallaðan Konfektís.
Ísinn kemur í 500ml dollum og hægt er að fá
hann með nokkrum bragðtegundum t.d. Pipp bragði, Karmellukonfektbragði
og Trompbragði. Allavega fannst mér hann heldur dýr eða
964 krónur dollan, en ákvað að láta það
eftir mér í það skiptið. Ísinn bragðaðist
býsna vel og ég ákvað að fá mér
hann aftur nokkrum dögum seinna en þá var ég staddur
í versluninni Bónus í Ögurhvarfi. Þá
kíkti ég á verðmiðann og sá að
hann kostaði 378 krónur. Þetta fannst mér ansi
hreint mikill verðmunur eða um 157%. Ég tékkaði
meira að segja aftur á þessu í Þín
Verslun til að vera alveg viss og þetta stendur. Þessi
verðmunur er algjörlega óútskýranlegur, alveg
sama þó opnunartíminn sé heldur lengri í
Þín verslun.
Brjálaður neytandi (sem finnst ís góður)
#1668 Í
dag þ.29.11. átti ég leið í tvö bakarí
Fjarðarbakarí við Dalshraun í Hafnarfirði
og Bakarameistarann í Austurveri við Háaleitisbraut
í Rvík.
Ég rak augun í alveg ótrúlegan verðmun
á alveg eins vöru.
Hnetuvínarbrauð, þessi sem eru flutt inn til landsins
tilbúin og fullbökuð hér
og eru til alveg nákvæmlega eins í öllum bakaríum
kostuðu kr. 150,- stykkið í
Fjarðarbakaríi en kr. 230,- í Bakarameistaranum.
Það er sem sagt áttatíu krónu verðmunur
á einu vínarbrauði á milli þessarra tveggja
bakaría !!! Maður hélt nú að
áttatíu krónur væri nóg fyrir einu vínarbrauði.!!!
Hera
#1667 Ég
keypti áðan perur í útiseríuna mína.
Hún er með 12V perum og aukaperur eru
seldar 3 saman í pakkningu. Fyrst fór ég í
Byko
í Breidd og keypti tvö pakka á
480 kr. pakkann, en þar sem aðeins voru til 2 pakkar en ég
þurfti 3, þá fór ég
í Húsasmiðjuna í Skútuvogi. Þar
keypti ég pakkann sem mig vantaði á 315 kr.
Það munar sem sé 165 kr. á pakkanum.
Ráðlegg fólki að athuga verð á svona
smávöru þar er virkilega smurt á
álagninguna.
Guðrún Einarsdóttir
#1666 Ég
fór í nýju fínu Byko í vesturbænum
til að kaupa ljósaperu. Þetta er halogen pera frá
Philips 50W. Hún kostar þar 3.528 krónur. Mér
var nú frekar misboðið og ákvað að eyða
frekar smá bensíni og keyra í Glóey í
Ármúla og athuga hvað hún kostar þar. Þar
kostaði samskonar pera 1.990 krónur. Þetta er verulega
mikill verðmunur. Ég mæli með Glóey.
Margrét Einarsdóttir
#1665 Fyrir nokkrum
dögum fór ég með tvær litlar útsaumaðar
myndir í Innrömmun E S S (Mosfellsbæ) og spurðist
fyrir um hvað það myndi kosta að ramma þær
inn. Ég valdi ramma og karton og þau mældu myndirnar
út og sögðu mér að þetta myndi kosta um
4000 kr. per mynd. Ég lét því slag standa. Þegar
ég svo fór að sækja myndirnar ætluðu
þau að rukka mig um rúmar 14.600 kr. Ég gerði
athugasemd við þetta verð og sagði að þetta
væri ekki í nokkru samræmi við það sem
mér hafði verið gefið upp áður. Þá
kom í ljós að starfsmaðurinn sem hafði gefið
mér upp fyrra verðið hafði gleymt að reikna ákveðinn
lið inn í verðið og því gefið upp kolrangt
verð. Fyrirtækið viðurkenndi að þarna hefði
starfsmanninum orðið á mistök en var ekki reiðubúið
að taka ábyrgð á þessum mistökum og stóð
fast á því að ég skyldi borga þessar
14.600 kr. Ég neitaði að greiða þá upphæð
(enda var hún 183% af verðinu sem mér var gefið upp
áður en ég ákvað að kaupa þjónustuna!)
og eftir töluverðan ágreining voru myndirnar loks rifnar
úr römmunum og skilað til mín.
Eðlilegir viðskiptahættir? Uuuuu... nei!
Berglind
#1664 Ég
mátti til með að koma á framfæri að ljósmyndastofan
Nýmynd ehf í Keflavík, hefur ekki breytt verðskrá
sinni síðan 1. nóvember 2006.
Þetta hefur eins og gefur að skilja, minkað rekstrarafgang
hjá Nýmynd verulega. Má segja að verið sé
að gefa með sumum vörum, en svona vill Sólveig hafa
það.
Hefur Sólveig rekið Nýmynd í 26 ár,
en félagið er stofnað þann 11.11.1982.
Verðskrá hjá Nýmynd er að fynna á
heimasíðu okkar; www.nymynd.is
Guðmundur R.J. Guðmundsson
#1663 Nýlega
mátti lesa frétt í dagblöðum
um að frá næstu áramótum yrði dýrt
fyrir bifreiðaeigendur að láta hjá líða
að færa bíla sína til skoðunar á
réttum tíma eða sekt allt að kr. 15.000.- Vitnað
er í greinargerð þar sem fram kemur að ríflega
25 þús. óskoðuð ökutæki séu
í umferð eða ca. 10% af ökutækjum landsmanna.
Það er órökstudd fullyrðing að 25 þús.
ökutæki séu óskoðuð í umferð
en trassar og lögbrjótar sem eru á slíkum bílum
í umferðinni í allavega ástandi hljóta
að vera viðfangsefni lögreglu. Eg skora á bifreiðaeigendur
sem ekki eru með bíla sína í umferð en hafa
af ýmsun gildum ástæðum ekki séð sér
fært að færa þá til skoðunar að láta
heyra í sér og mótmæla slíkum fésektum
Samgönguráðherra. Megum við þá ekki búast
við því að þurfa að druslast með hjólhýsin
okkar í skoðun allan veturinn með með tilheyrandi fyrirhöfn
og veseni.
Lárus Sigurdsson
#1662 Ég
lenti í þeirri misskemmtilegu lífsreynslu um daginn
að hella hálfu glasi af mjólk yfir tölvuna mína.
Sem nemandi í HÍ í miðjum prófalestri sárvantaði
mig gögnin mín og tölvu sem virkaði. Ég hringdi
í tryggingafélagið mitt og þeir benda mér
á að Digital Task á Grensássvegi sé
umboðsaðili fyrir mína gerð af tölvum, þó
eftir að hafa gúglað sá ég að fleiri fyrirtæki
önnuðust mína tegund af tölvu.
Ég heimsæki Digital Task og segi þeim hvað gerðist
og spyr hvort það sé nokkuð hægt að laga
hana. „Nei, hún er pottþétt ónýt“ segir
starfsmaður Digital Task. „Jæja“ hugsaði ég, „það
er þá komin niðurstaða í málið“.
En það var ekki svo einfalt; Tölvan mín þurfti
að fara í skoðun hjá þeim í Digital
Task til að þeir geti skrifað upp á að tölvan
sé virkilega ónýt og það kostar 9.900 kr.
Sem stressaður nemi ítrekaði ég við starfsmanninn
að ég þyrfti tjónaskýrsluna sem fyrst
svo ég ætti nú pening til að kaupa mér nýja
tölvu fyrir þessa, en hann sagði mér að koma
aftur eftir viku og gæti ég fengið tölvuna þá.
Taktu nú eftir, starfsmaðurinn var búinn að staðfesta
við mig að tölvan væri ónýt og ætlaði
að láta mig bíða í viku eftir að fá
það á blaði.. fyrir 9.900 kr.
Vikubiðtími var eitthvað sem ég gat ekki sætt
mig við og hélt áfram að ítreka hversu fljótt
ég þyrfti skýrsluna, helst þann sama dag. Jújú
það var ekkert mál fyrir mig að fá flýtimeðferð
og fá tölvuna þá daginn eftir, en það
var bara prís á því: 9.900 kr. Þannig
að það sem Digital Task bauð mér upp á
var að borga 20.000 kr fyrir tjónaskýrslu af tölvu
sem starfsmaðurinn sagði mér að væri pottþétt
ónýt og flýtimeðferðin tæki sólarhring.
Á þessum tímapunkt var ég byrjaður að
leita mér flóttaleiða og mundi eftir gúglferðinni
minni. Tölvuverslunin Omnis á Akranesi sá einnig um
sömu tegund af tölvum og hneykslaður á veruleikafirru
starfsmanns Digital Task spurði ég þá ekki um verð
þegar ég hringdi í þá fyrir framan hann
heldur einungis hvort þeir gætu tekið á móti
tölvunni minni og afgreitt í dag. Það var minnsta
málið og brunaði ég upp Skaga. Þrem korterum
seinna stend ég fyrir framan starfsmann Omnis og eftir að hafa
útskýrt klaufaskap minn með tölvuna spyr ég
hann hvað þessi þjónusta kosti. Starfsmaður
Omnis svarar mér skömmustulegur „við erum reyndar nýbúnir
að hækka verðið“. „Æðislegt“ hugsa ég
og rifja upp svaðilfarir mínar þennan daginn. „...3200
krónur“ klárar starfsmaðurinn setninguna sína
á. Ég reiknaði mér til að það væri
625% hækkun
Klukkutíma eftir að ég hafði sagt við umræddan
starfsmann að kýla á þetta hringir hann í
mig og segir mér að skýrslan sé tilbúin.
Tölvan var jú ónýt rétt eins og starfsmaður
Digital Task sagði við mig. Þegar ég spyr hvar ég
eigi að borga segir starsfsmaður Omnis mér að gleyma
því, þetta hafi verið greinilegt frá byrjun
og hafi ekki þurft mikla skoðun. Honum fannst ekki sanngjarnt
að rukka mig fyrir þetta.
Ég veit allavegana hvar ég versla ekki í framtíðinni....
ÞR
(ATH: Fínt að benda fólki á að það
er líka Omnis í Keflavík, sama frábæra
þjónusta :))
#1661 Ég
varð fyrir óvæntri og óskemmtilegri reynslu í
verslun sem nefnist Bison og staðsett er í Kringlunni.
Ég hafði fengið fallega rauða peysu í afmælisgjöf.
Vandinn var að hún var of stór. Ég fór
því búðina og bað um að fá að
skipta í minni peysu sem passaði á mig. Starfsmaðurinn
þvertók fyrir slíkt. Þessi tegund af peysu væri
ekki lengur til sölu í búðinni og því
væri ekki hægt að taka við henni. Það skal
tekið fram að ég hafði aðeins einu sinni smeygt
mér í peysuna, hún var ónotuð og eins ný
og þegar hún var keypt. Ég sagði við starfsmanninn
að peysan þyrfti ekki að vera sömu tegundar og sú
sem keypt hefði verið, aðalatriðið væri að
hún passaði á mig. Mér var þá svarað
með þjósti að það kæmi ekki til mála
að skipta. Aðspurð hvað hún verslunina enga ábyrgð
bera í svona tilvikum. Sem sagt, hagsmunir verslunarinnar teknir
fram yfir hagsmuni viðskiptavinarins.
Björn Sigurbjörnsson
(02.12.08):
#1660 Ég hef
oft furðað mig á því að ekki er hægt
að kaupa nýju íslensku “jólabækurnar”
í kiljum um jólin. Það er ekki fyrr en nokkrum
mánuðum síðar sem þær eru gefnar út
í kiljum. Ég skil ekkert í því af hverju
ég fæ ekki að velja hvort ég kaupi kilju eða
harðspjalda bók í desember. Persónulega finnst
mér kiljur handhægari og ég er ekki ein af þeim
sem safna bókum í bókahillur, vil frekar láta
þær ganga til annarra þegar ég hef lesið þær.
Ég var því glöð þegar ég
sá Myrká eftir Arnald Indriðason í kilju í
verslun Eymundssonar í Flugstöðinni nú á
dögunum og var ekki sein á mér að kaupa bókina.
Hún kostaði 2.690. Afgreiðslustúlkan sagði mér
að kiljan fengist bara í Flugstöðinni, ekki í
verslunum Eymundssonar í Reykjavík. Nú langar
mig til að fá skýringar á þessu. Ég
sé að bókin (harðspjalda) er auglýst á
tilboði hjá Eymundsson á 3.790 og í Bónus
á 3.390. Það eru því greinilega hagsmunir
neytenda að fá að kaupa kiljurnar.
Annað mál sem varðar Eymundsson í flugstöðinni.
Þær bækur sem ég hef keypt þar (fyrir utan
Myrká) eru á nákvæmlega sama verði og þær
eru seldar á í öðrum verslunum þeirra. Það
munar ekki einu sinni virðisaukaskattinum. Ég spurðist fyrir
um þetta í flugstöðinni og svarið var að
sölukerfið byði ekki uppá mismunandi verð í
verslunum þeirra.
Jóhanna
#1659 Vildi bara
láta vita um að Tal er í rauninni að blekkja fólk
með röngu verði á heimasímanum hjá sér.
Það stendur að heimilissíminn kostar 1309
Kr. á mánuði. En ef þú vilt hafa greiðsluseðil
í heimabanka (vil ekki láta taka af kreditkorti) þá
kostar það 280 kr. "seðilgjald". Þannig að maður
sleppir aldrei undir 1589 kr í heimasímakostnaði. Og
það er nú víst ekki birt á heimasíðu
hjá þeim (http://www2.tal.is/index.aspx?groupid=643).
Aftur á móti hjá vodafone stendur á sama
síðu (verð) að seðilgjaldið í heimabanka
eru 50 kr (http://www.vodafone.is/simi/heimasimi/leidir).
Tal hringdi í mig um daginn til að fá mig yfir frá
vodafone til þeirra og ég bað sérstaklega um að
hafa seðil í heimabanka og spurði um hvort verðið
er þá það sama. "Já" sagði kallinn. Svo
var ég nú voða hissa að ég borgaði í
endanum meira hjá þeim en hjá vodafone þegar
ég kíkti í heimabanka seinna.
Ég for aftur yfir til vodafone, ekki út af þessum
30 kr sem ég spara þarna heldur út af þrjóska!
Þetta er auðvitað ömurlegt að blekkja fólk
með svona tilboðum sem standa svo engann veginn.
Steffi
#1658 Mjög
magnað að sjá opinbera ósk um glæpsamlega hegðun
og það þegar menn eru
að græða blússandi.
Sjá fréttina á vísi.is Ferðamenn
hafa neitað að borga
„Við breyttum okkar verðlagningu í evrur fyrir hálfu
ári," segir Kristján.
Þeir hafi hins vegar ekki lækkað verðið þegar
krónan féll. Hann kallar eftir
samráði um verðlagningu meðal fyrirtækja í
ferðaþjónustu. Ekki verði undan
því vikist fyrir flest fyrirtæki að hækka
sitt verð og best sé að gera það
sem fyrst.
Hérna er fyrirtæki með verðlagningu í evrum
og gríðarlega mikla
tekjuaukningu í kjölfar fallst krónunnar. En nei
ekki nóg. Nú þarf að ná upp
verðsamráði til að okra meira. Ógeð..
Guðbrandur
#1657 Mig vantar
nýja 20 ljósa útiseríu svo ég skrapp
í
Garðheima í gær til að athuga með
verð og þar kosta þær 3.580 svo ég kíkti
nýjasta bæklinginn inná byko.is og þar stendur
að þær kosti 3.690 síðan ákvað ég
að kíkja á husasmidjan.is þar sem þeir auglýsa
þessa dagana að þeir séu með seríur á
gamla verðinu og þar fann ég alveg eins seríu á
4.999kr. Finnst það pínu skrýtið gamalt verð...
Elsa Rut
(01.12.08):
#1656 Nú
þegar vetur leggst yfir og kuldi, streita, spenna, blankheit og almennt
kreppuástand nístir líkama og huga landans, langar
mig að benda á nokkuð sem er EKKI-OKUR. Nudd er hægt
að fá á mörgum stöðum, með mismunandi
gæðum, vegna t.d. menntunar/menntunarleysis nuddara – og nudd
er á afskaplega mismunandi verði. Flestar nuddstofur hafa
nokkra bekki – stundum bara með tjaldi á milli – og tíminn
er nákvæmlega tekinn, t.d. 50 mín. og þá
er nuddþeganum hent af bekknum og næsti settur á. Ekki
þægilegt né faglegt – að mínu mati. Og oftast
kostar slíkur tími hátt í tugþúsund.
Á ýmsum stöðum kostar 50-60 mín. nudd
hátt í 10 þúsund kr. – og stundum meira.
Þess vegna langar mig að benda á faglegt og gott nudd
á góðu verði (er vitanlega að auglýsa
sjálfa mig!). Ég er menntaður heilsunuddari og er með
nuddstofu í Laugardalnum þar sem klukkan er ekki ráðandi.
Hver nuddtími er lágmark 60 mín. og yfirleitt lengur,
því ástand fólks er misgott þegar á
bekkinn er komið og sumir þurfa aðeins lengri tíma.
Nuddtíminn
kostar aðeins 5.000 kr. og ég held að ég geti
með góðri samvisku sagt að hvergi (altént ekki
á mörgum stöðum) sé hægt að fá
gott og faglegt nudd á góðri nuddstofu á þessu
verði. Það er ákveðin pólitík hjá
mér að hafa verðið ekki hærra – þótt
ég gæti vissulega hækkað miðað við aðrar
stofur) – því ég vil frekar hafa verðið lágt
til að fólk geti komið oftar. Ef nuddtíminn kostar
10 þús. eða meira leyfa fæstir sér að
fara í nudd þótt líkaminn öskri á
það, en ef verðið er lægra getur fólk komið
í nudd – án tiltakanlegs samviskubits – því
svo sannarlega þurfa langflestir nudd. Góður nuddtími
er svo náttúrlega afskaplega falleg gjöf til ástvina
sem eru orðnir hoknir af vöðvabólgu, streitu, kvíða...
og alls þess sem þessi kreppa orsakar!!!
Nanna Sigurdórsdóttir, heilsunuddari
S. 868-1167
#1655
Ég er búin að vera að fylgjast með verðinu
á stýrissleðum í ca. 2 mánuði
þar sem að mig langar svo að gefa strákunum mínum
svoleiðis í jólagjöf.
Ég var búin að finna sleða á 6.990 kr.
í
Byko en vildi skoða annarsstaðar fyrst því
mér fannst þessir ekki jafn massífir og Stiga sleðarnir.
Ég fór í nokkrar búðir í bænum
og var búin að sjá sleða frá 8.990 kr. og
uppúr þannig að ég ákvað einum og hálfum
mánuði seinna að fara þá bara í byko
og kaupa hann næst þegar ég átti leið hjá
og viti menn sleðarnir komnir á tilboð í Byko nú
á aðeins 9.990 kr. stk. sleðinn búinn að hækka
um 3000 kr. við það að fara á tilboð!!!
Hefur orðið tilboð fengið nýja merkingu hjá
verslunarmönnum í kreppunni eða halda þeir virkilega
að við neytendur séum svona nautheimskir?!
+
Keypti smá tutl í poka í Samkaup-strax
um daginn. Þetta var ekki hálfur poki einusinni en innkaupin
innihéldu kaup á einum snakkpoka ásamt öðru
ég rétti kortið og fór svo heim. Börnin mín
opnuðu snakkpokann og fóru að narta. Ég ákvað
að kíkja á strimilinn áður en ég henti
honum tutlið í pokanum kostaði tæpar 4000 kr.!!! þar
af stakkpokinn af maarud svona hringir og skrúfur með papriku
677 kr.!!! Ég gat auðvitað ekki skilað honum þar
sem að það var búið að opna hann þannig
að ég fékk mér bara bita með þeim af
Gull-snakkinu sem var svo útrunnið daginn eftir, sem sagt mjööög
gamalt.
Ég fór svo í sömubúð í
dag og keypti rjóma sem var notabene útrunninn (sá
það þegar ég kom heim) á 20% afslætti
ég var nú glöð að þeir höfðu
nú afslátt af eitthverju en ekki jafn glöð að
fá útrunna vöru!!!
Ein nafnlaus
#1654 A B Bremsur
og viðgerðir, Akralind 1. Fór með bílinn
minn í bremsuviðgerð, til að láta skipta um tvenn
bremsurör. Ég sýndi “virkjanum” hvaða rör voru
biluð enda fór það ekki á milli mála,
(þau láku). Þegar ég sótti bílinn
var hann enn bremsulaus og búið að skipta út tvennum
heilum rörum við afturdekkin. Sem sagt, það sem beðið
var um var ekki gert. Svo var rukkað um 35.000 kr fyrir vitleysuna.
Einnig var óskað eftir því að þetta yrðu
nótulaus viðskipti.
Það sem er svo grábölvað er að fyrirtækið
neitaði að leiðrétta mistökin. Mér líður
eins og ég hafi farið í létta aðgerð á
ökla en vaknað handalaus.
Þorgeir Jónsson
(Sett inn 29.11.08):
#1653 Sonur minn
var að fara á kaffihúsadag í skólanum sínum.
Hann bað mig að kaupa muffins með kókos svo ég
kom við í Nóatúni í Hafnarfirði
á leið heim úr vinnu. Muffins með kókos
var ekki til í versluninni og reyndar engar muffins, svo ég
greip bakka með litlum kleinuhringjum (ca 10 pínulitlir
kleinuhringifr á bakka frá Ömmubakstri – sjá
viðhengi )
Ég fór á kassa og rétti afgreiðsludömunni
kortið, án þess að heyra upphæðina.
Þegar hún rétti mér seðilinn til undirskriftar
fékk ég nánast hjartastopp. 738 kr. kostaði
þessi litli bakki af kleinuhringjum! Það þýðir
tæpar 74 kr. fyrir stykkið. Ég bað stúlkuna
vinsamlega að bakfæra viðskiptin sem hún og gerði.
Hrefna K. Gunnardóttir
#1652 Alveg HELLAÐ
ekki-okur hjá Bónus um helgina:
Kjúklingabringur: 1.554 kr/kg
Hamborgarhryggur (eða "kreppusvín"): 899 kr/kg
Lengi lifi Bónus!
Óskar Pétur Einarsson
#1651 Hagkaup er að bjóða
öllum Íslendingum "Vaxtalaust Jólalán" þessa
dagana sem á að létta fólki róðurinn
með greiðsludreifingu í allt að 6
mánuði. Svo dirfast þeir að setja klausu með
minnsta mögulega letri
neðst í auglýsinguna þar sem stendur "tökum
3% lántökugjald!" ... Takk
fyrir að létta okkur róðurinn Hagkaup!!
Jonathan
#1650 Útsölumarkaður
66°norður ??!!!!
Ég skoðaði flíspeysur á „útsölu“markaði
66° norður í dag. Þetta virtust vera sömu peysur
og ég sá þegar ég var þar á ferð
í ágúst sl. Verðið var þá
rúmlega 5000 kr.
Í dag kosta þær rúmar 8000 kr. Á hverri
flík var hægt að sjá að eldri verðmiðar
höfðu verið kroppaðir í burtu og nýir settir
í staðinn.
Er þetta bjóðandi? Er þetta löglegt?
Dóra
#1649 Ég
fór í Hagkaup um daginn og sonur minn var fljótlega
kominn í Lego-deildina. Þar sá ég að
Star Wars Lego pakki sem ég hafði keypt í Toys 'r us
um miðjan september á 13.999 kostaði um miðjan nóvember
í Hagkaup 19.999 kr. Hvað ætli hann kosti í Toys
'r us í dag? Svo var þarna líka Legokastali sem kostaði
7000 kr síðustu jól sem sonurinn fékk í
jólagjöf kominn á 12.690 kr. Svakalegar hækkanir,
ekkert Lego í jólagjöf þetta árið.
Eva Hrönn
#1648 Var í
Bónus
með betri helmingnum og rak þá augun í að SEX
STYKKI íslenskir
tómatar kosta 459 kr. Ég lagði þá
frá mér og keypti í staðinn 2 250 gramma
kassa af kirsuberjatómötum á 156 kr pakkann... og
þeir voru líka
íslenskir...
Ég man svo sem ekki hvað tómatarnir kostuðu fyrir,
en finnst þetta óeðlilegt verð, rúmar 75 kr
per tómat.
Hildur Ýr
#1647 Krónan
vs. Hagkaup. Krónan er auglýst sem lágvöruverslun
og Hagkaup þykir dýr búð.
Ég verslaði í Krónunni 26. nóvember
sl. Þurfti svo að hlaupa inn í Hagkaup eftir nokkrum hlutum
sem ég fékk ekki í Krónunni. Ákvað
því mér til gamans að kanna verðmuninn á
nokkrum hlutum (sjá hvað ég spara mikið á
að versla ekki allt mitt í Hagkaup).
Sykurbaunir (snjóbaunir) kostuðu mig 595kr í
Krónunni, nákvæmlega sama magn og sama tegund kostar
í Hagkaup 399kr. Sveppir í pakka (Flúða sveppir)
kostuðu mig 234kr í Krónunni en í Hagkaup kostar
pakkaðinn af Flúða sveppum 229kr. Smá mál
(súkkulaðifrauð) frá MS kostar í Krónunni
107kr en í Hagkaup kostar Smá málið 77kr.
Síðast en ekki síst var það Egils malt
& appelsín í dós, keypti kassa af því
á 1249kr í Krónunni en í Hagkaup kostar kassinn
af þessu 1199kr. Til "gamans" vil ég benda á að
það var þann 26. nóvember sem ég borgaði
þessar 1249kr fyrir malt & appelsínkassann EN daginn eftir
er heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu
frá Krónunni, tilboðsvörur helgarinnar............
þar er þessi sami kassi auglýstur á TILBOÐI
á 1299kr. Sem sagt varan fer á tilboð og hækkar
þá um 50 kr?!!!!!!!!!!
Hagkaup var oftar en ekki ódýrari en Krónan og
það kom mér mjög á óvart!!!!
Sigrún Kvaran
(Sett inn 28.11.08):
#1646 Verð
á dekkjum er okur almennt.
En hér má sjá samanburð sem ég gerði
í morgun af því að mig vantar dekk.
Dekk eru vissulega mis dýr eftir því hvaða
stærð og breidd þau eiga að vera í en ég
er með mjög algenga fólksbílastærð.
205/55 16R.
Sömu dekkin (Sunny) ...sem eru ódýr negld dekk kosta
td:
15000(Borgardekk), 16600(Gúmmívinnustofan Skipholti),
16999 (Hagkaup)
Þarna er 8.000 króna munur á umganginum á
bílinn á milli Borgardekkja
og Hagkaupa með nákvæmnlega sömu dekkin frá
sama framleiðanda í sömu stærð.
Smá sem ég setti saman til að hafa yfirsýn...
Ég tek það fram að ég Komið undir útreikningarnir
eru gisk þar sem að ég veit ekki hvað ásetningin
kostar allstaðar.
Guðjón Jónsson
#1645 Hér
er hressandi dæmi um þær verðhækkanir sem eru
búnar að vera í gangi.
Fyrir ári síðan keypti ég Nintendo Wii
leikjatölvu á rúmar 24þúsund krónur.
Þetta er tölvan með einum leik (wii sports) og stýripinnum
fyrir einn.
Fyrir viku síðan sá ég sama pakka á
rúmar 49þúsund krónur.
Nú í kvöld sé ég að pakkinn kostar
56.900 krónur....
Sjá nánar hér.
Björn Ingimundarson
#1644 Ég var að lesa yfir jólatilboðabækling
Húsgagnahallarinnar.
Þar er verið að auglýsa mikinn afslátt
á húsgögnum.
Gefið er tilboðsverð og verð áður.
Við margar vörur má sjá í smærra
letri útreikning á raðgreiðslum en einnig aftur tekið
fram tilboðsverð og verð áður.
Í öllum tilfellum er tilboðsverð mun lægra
og verð áður mun lægra. Virðist vera sem verðin
hafi verið endurskoðuð í flýti fyrir prentun.
Er Húsgagnahöllin vísvitandi að falsa það
verð sem varan var á áður?
Hvort kostaði IMOLA 3 sæta sófi, sem er auglýstur
á 25% afslætti, 179.980 áður eða 199.980?
Miðað við lægra verðið á 25% afsláttarverð
að vera 134.980 en ekki 149.980.
Guðlaugur Kr. Jörundsson
#1643 Ég
fór í Bíó fyrir viku síðan
á Body of lies í Álfabakka. Miðinn kostaði
1050 og ég spurði af hverju hann væri svona dýr.
Þá sagði stelpan í miðasölunni að
hann væri svona dýr vegna þess að hún væri
sýnd í digital stereo eða digital einhverju, man
ekki alveg hvað hún sagði. En það var út
af því að hún var sýnd í digital
eitthvað. Mér finnst menn vera farnir að seilast heldur
langt og ódrengilega eftir peningum þessa dagana.
Frónverji Frónverjason
(Nb. Já, en hei: Þetta er digital!)
(Sett inn 27.11.08):
#1642 Við
erum með myntkörfulán hjá Frjálsa fjárfestingabankanum.
Þeir bjóða nú uppá fólki uppá
fastar greiðslur í 10 mánuði (sirka 5,500 kr á
milljónina). Bankinn hinsvegar krefst þess í staðinn
að við leyfum þeim að reikna mánaðargreiðslur
á hvaða gengi sem þeir vilja, í staðinn fyrir
gengi Seðlabanka Íslands eins og er í dag. Þeir
kalla þetta "sölugengi kröfuhafa" og það er hvergi
skilgreint (ég spurði sérstaklega). Ef þeir vildu
vera heiðarlegir hefði verið auðvelt að segja t.d.
"hagstæðasta gengi sem kröfuhafi fær á markaði"
eða álíka. Vil benda fólki á að undirskrift
er nákvæmlega eins og að skrifa undir óútfylltan
tékka!
Ónefndur skuldari
#1641 Eftir ferð
mína í tvær lágvöruverslanir í dag
skil ég loksins þetta orð 'lágvörur'. Það
eru vörur sem eru seldar með því að leggjast
lágt. Sjáum hér tvö dæmi, hvort úr
sinni búðinni:
Krónan: Verðmerkingin höfð á hvolfi svo
varan virðist ódýrari.
Bónus: Torkennileg vatnsblanda seld á 2.200 kr. kílóið.
Lystugur kjúklingur? Nei.
Örn
Úlfar
#1640 Það
er ekki á allra færi að fá sér pizzu á
Pizza
Hut í dag. Pizza Hut eru búnir að hækka verðið
hjá sér, og nú er hægt að fá þar
pizzu á hvorki meira né minna en 6.120 krónur. Þetta
er dýrasta pizzan, stór Super Supreme með ostafylltum
kanti. Til samanburðar má nefna að sama stærð
af Margaritu kostar ekki nema 3.710 krónur. Gefins!!!
Védís
#1639 Kannski
er það að bera í bakkafullan lækinn að nefna
okur í 10-11 en mér fannst þetta samt svo svívirðileg
tilraun til þess að hafa mig að fífli að ég
gekk beina leið út aftur og keyrði ca.2 kílómetra
í næstu búð sem þó er ekki þekkt
fyrir að vera neitt sérstaklega ódýr og sparaði
mér heilar 200 krónur á einum 250 gramma kaffipakka.
Lavazza espresso kaffi (í svörtum pakka) 10-11 = 899 krónur.
Sami pakki í Hagkaup Garðabæ = 699 krónur ! sem
einhverjum finnst nú víst andskoti nógu dýrt.
Það má svo skemmta sér við að reikna út
hvað grammið kostar...
Axel Hrafn Helgason
(Sett inn 26.11.08):
#1638 Þar
sem við á Santa María höfum ekki efni á
að auglýsa okkur langaði mig bara að láta ykkur
vita að við höfum tekið þann pólinn í
hæðina að ströggla með fólkinu í landinu
(sem við erum sjálf) og þar af leiðandi höfum
við ekki hækkað neitt sem er til sölu hjá
okkur um eina einustu krónu síðan við opnuðum
(1. mars sl.). Við höfum verið dugleg við að aðlaga
okkur breyttum aðstæðum og vonum sannarlega að byrgjar
kyrki okkur ekki alveg, hvorki með verðum (sem þó
rjúka upp), né með því að hætta
að flytja inn það hráefni sem við þurfum.
Nema hvað... mig langaði bara að láta vita af þessari
stefnu okkar :)
María Hjálmtýsdóttir / Santa María
(Nb. Er þá Santa María eina pleisið á
landinu sem hefur ekki hækkað síðan kreppan kom? Ég
segi nú bara áfram Santa María! Fyrir þá
sem ekki vita þá er þetta dúndur fínn
mexíkóskur staður á Laugarvegi 22 þar sem
allir réttir kosta undir þúsund kallinum.)
(ATH: Í færslu #1638 spyrð þú
hvort þetta sé eini staðurinn sem ekki hefur hækkað,
Tikk Takk á Akureyri hefur ekki hækkað og þau segja
að þau munu gera sitt besta til að hækka ekki.
Brauðstangirnar hafa meira að segja lækkað.
Nafnlaus kveðja frá Akureyri.)
#1637 Var að
panta pizzu hjá Hróa Hetti um daginn, 18" (pantað
af netinu) áleggin kostuðu auðvitað sitt, mig langaði
einnig að bæta svörtum pipar á pizzuna en komst þá
að því að pizzan hækkaði í verði
um 357 krónur. Samkvæmt þessu, ef áætlað
magn af pipar sé á að giska 2 grömm á umrædda
pizzu, þá reiknast mér til að kílóverð
á svörtum pipar með Þjónustu hjá Robin
Hood sé þá u.þ.b. 178.500 krónur TAKK
FYRIR. Sjá hér.
Finnur Einarsson
#1636 Ég
er með okursögu.
Ég hefði geta sparað mér 1267 kr á tveim
lyfum ef ég hefði gert þennan
verðsamanburð áður en ég fór að
versla. En ég keypti í dag Phenergan á
2220kr og Doxylin á 4113kr í Lyfjavali. Þessi
lyf kosta 1776kr og
3290kr í Rima apoteki. Það er sko ekki spurning hvert
ég fer næst!
Lilja
#1635 Allir vita
að það kostar sitt að versla í NÓATÚNI
en úrvalið er gott og varan ágæt. Það
afsakar þó ekki OKUR á ódýrum vörum
eins og pakka af pasta Barilla, Penne á 384 kr sem er um það
bil þrefalt venjulegt verð!!!
Vala
#1634 Áframhaldandi
okur í Krónunni í Mosfellsbæ.
Okursaga #1534 sagði frá hækkun á kassa af
kisufóðri úr 599 í 1.299 kr.
Nú er búið að hækka meira, upp í
1.499 kr.
Með nánari athugun, hækkun úr 699 í
1.499 (114% hækkun) á 34 dögum.
Er þetta met ?
Douglas
#1633 Margnota
plastflaska í Soda Stream tæki kostar 999 krónur í
Byggt
og
búið í Kringlunni. Nákvæmlega
eins flaska kostar 389 krónur í Hagkaup!
Byggt og búið er algjör okurbúlla!
Björg Þorsteinsdóttir
#1632 Í
10-11
í Borgartúni kostar venjulegur pakki af Ópal, sykurlausum
rauðum 336 kr. Hvað er að?
Heiðdís
(Nb. Hvað er að? Að einhver skuli ennþá
versla við 10-11!)
#1631 Ég
fór í heildverslunina Halldór Jónsson
til að kaupa 4 boli sem mig vantaði upp í pöntun hjá
mér. En fyrir þessa 4 boli þurfti ég að borga
400 kr. í afgreiðslugjald fyrir utan. Vsk. Ég hef
verslað í mjög mörgum heildverslunum en aldrei fyrr
heyrt um afgreiðslugjald. Ég gerði athugasemd við
þetta, og þá var mér sagt að það
væri tekið afgreiðslugjald fyrir allt sem væri undir
5000 kr. Ég hef ekki mikinn áhuga á að skipta
við þetta fyrirtæki aftur.
Elín / www.oliprik.is
#1630 Hringdi
áðan í 3 apótek í Reykjavík til
að athuga verð á nikótíntyggjói.
Um er að ræða Nicotinell Fruit, 2mg, 204 stk:
Skipholtsapótek:
3.658,-
Rimaapótek:
4.632,-
Lyfja, Smáratorgi:
5.060,-
Okrið er klárlega hjá Lyfju, 72% munur!
Helgi Hafþórsson
#1629 Vildi benda
þér á fínt flúortannkrem sem hefur
sama flúorinnhald (1450 ppm) og rándýr tannkrem frá
þekktari merkjum.
Það fæst í Bónus, kostar undir 100 kallinum
og heitir Fluortandkram-Fluortannpasta og er frá Euroshopper
merkinu.
Það hefur milt og fínt bragð og gerir sama gagn
og td Colgate sem er u.þ.b. fjórum sinnum dýrara.
Tannlæknir sem óskar nafnleyndar
#1628 Íbúakort fyrir bíleigendur
í miðbæ Reykjavíkur kostaði 3.000 sl. tvo ár,
en hækkar í 6.000 fyrir hvern bíl, frá og með
1. febrúar nk. Mest er hægt að fá kort fyrir tvo
bíla fyrir hvert heimilisfang.
Íbúum þótti skattheimtan frek þegar
henni var komið á fyrir um tveimur árum síðan.
Skattheimtunni var komið á undir þeim formerkjum að
færri bíleigendur leggi bílum sínum í
stæðin. Þetta átti að auðvelda íbúum
að fá stæði fyrir framan heima hjá sér
en skortur á bílastæðum er viðvarandi vandamál
á þessu svæði.
Ekki er miklar breytingar að sjá frá því
að skattheimtunni var komið á. Svo virðist að jafn
margir bílar, eða í besta falli litlu færri, leggi
þar hvort sem er og íbúar hafa enga enga tryggingu
fyrir því að fá bílastæði fyrir
framan heima hjá sér, hvorki að degi eða nóttu.
Að ofansögðu er óljóst hvaða tilgangi
skattheimtan gegnir.
Ennfremur hlýtur það að vera brot á jafnræðisreglu
að sumir íbúar í Reykjavík, en ekki aðrir,
þurfi að greiða sérstakt gjald fyrir að leggja
bílnum fyrir framan heima hjá sér.
Grein eftir mig sem birtist í mogganum árið 2006:
http://frontpage.simnet.is/valsson/2006_11_06_Flytjum_MR_og_Kvennaskolann_ur_midbaenum.pdf
Stefán Helgi Valsson
#1627 Ég
og maðurinn minn fórum núna í sumar að velta
mikið fyrir okkur verðmerkingum og öðru slíku í
búðum. Ég hef reyndar oft í gegnum árin
fylgst með þessu og verið nett Neytenda-Nanna og ekki hikað
ef ég hef munað annað verð heldur en kom á kassa
og þá verið „þessi óþolandi sem vælir
yfir nokkrum krónum og tefur alla röðina“.
Nema það að við fórum ss að gera þetta
skipulega og keyptum okkur litla rissbók til að punkta hjá
okkur því það tefur nú ekki mikið að
skrifa niður um leið og nánast undantekningarlaust er munur
á hillu- og kassaverði. Gæti komið með endalaus
dæmi, T.d. í Samkaup, Egilsstöðum núna
í nóvemberbyrjun; Keypti ég 4 vörur og það
voru 4 rangt merktar, þar á meðal salatbar sem átti
að vera á 728 kr/kg en á kassa var það 830
kr/kg. Ég benti á þetta á mánudegi og
á fimmtudegi þegar ég kom aftur var ekki búið
að laga þetta og þær enduðu á að taka
niður merkinguna bara. (sem virðist vera einfaldasta lausin alltaf
og skýrir sennilega alltaf ómerktu vörurnar) Salatbarinn
hjá þeim er ansi vinsæll þarna í hádeginu
og ég sá nú engan vera svona smámunasaman að
gera einhverja athugasemd né pæla í þessu yfirhöfuð.
Núna laugardaginn 22.nóv vantaði mig skraut á
afmælisköku og fór í Krónuna í
Mosó. Hlaupsnuddur í poka voru dýrari en að
kaupa hjá þeim úr sjálfsafgreiðslubar á
1579 kr/kg. og svo gefa þeir 50% afslátt á föstudögum
og laugardögum. 1579 kr/kg stendur stórum stöfum málað
á risaspjald ofan við nammið þannig að það
ætti ekki að fara á milli mála en þegar ég
kom á kassann var verðið komið í 1939 kr/kg!!!
360 króna hækkun sem þeir lauma inn á milli.
Veit nú ekki hvort þeir hækka þetta bara í
tölvunni um helgar þegar þeir gefa afslátt en maður
þarf alltaf að vera á verði og þetta er sko
ekki í fyrsta og eina sinnið sem verðmerkingar standast
ekki hjá Krónunni. Hvað ætli þeir hafi „rænt“
mörg börn þessa helgina?
kv.Neytenda-Nanna
#1626 Ég
get nú ekki orða bundist yfir hreint út sagt, þanning
er mál með vexti að ég fór í Smáralindina
með tengdadóttur minni og barnabarninu mínu. Ákváðum
við að setjast inn á veitingastaðinn Pizza Hut,
pöntuðum við okkur sem hér segir:
Reikningurinn sundurliðaður var skv.reikningi Fyllt Brauðst.
m kr.1.690.-
Brauðst. lítill
890.-
Pepsi glas
380.-
Pepsi glas
380.-
Samt :
kr:3.270.-
Neðst á kvittunni stóð reyndar,
Takk fyrir komuna
verði þér að góðu!
Ég á ekki orð yfir þetta kurteislega sagt OKUR
VERÐ, mun ekki stíga fæti mínum inn á þennan
veitingastað framar ,vildi bara láta aðra vita.
Amma
#1625 Ég
veit ekki hvort að Tölvusíminn hjá Símanum
er nýtilkominn, en ég rakst á hann óvart um
daginn
þegar ég var að skoða síðuna hjá
Símanum http://www.siminn.is/einstaklingar/netid/tolvusiminn/
hann er hrein snilld, þú hringir ókeypis í
alla heimasíma á Íslandi jafnvel þó að
maður sé staddur
erlendis, verður reyndar að vera með internet pakkann Bestur
eða Langbestur til að þetta kosti
ekkert, kostar annars 990 á mánuði, þarft líka
augljóslega að eiga heyrnartól með hljóðnema.
ATH: Ég vinn ekki hjá Símanum, vildi bara taka
það fram.
Scordite
#1624 Eftir að
hafa lesið um eldsneytisverð í Fjarðarpóstinum
dagsett 19.11.2008,
sendi ég son minn í dag 21.11.2008, eftir bensíni
í ÓB Fjarðarkaupum.
Þar átti líters verðið á 95 okt.
bensíni að kostaði 148,2 kr.
Þegar hann kom heim sá ég á kvittuninni
að hann hafði borgað 153,1 kr. fyrir líterinn.
Athugaði ég á heimasíðu ÓB og sá
að verðið átti að vera 148,2 kr. eins og stóð
í Fjarðarpóstinum.
Ég hringdi í ÓB. Þeir viðurkenndu
mistök og greiddu mér tvöfaldann mismuninn til baka.
Eiga þeir hrós skilið fyrir það.
Við eigum að fylgjast með og bera saman kvittanir og auglýst
verð.
Harpa
#1623 Toys R Us:
Má til með að koma þessu áleiðis vegna
þess að manni blöskrar hvernig þessi verslun ber fyrir
sig slöku gengis krónunnar, þegar hún hækkar
verð upp úr öllu valdi.
Mér er algjörlega misboðið vegna græðginnar
í þessari verslun. Ég á þrjú börn
og vinir mínir eiga börn svo að ég hef verslað
eitt og annað hjá þeim. En það geri ég
ekki aftur. Ég sá hjá þeim um daginn 4 litlar
plastdúkkur í kassa. Dúkkurnar sem eru svona Skellibjöllu
fígúrur eru með vængi sem hægt að er
hrista svona töfraduft úr. Dúkkurnar eru svona ca 5
cm háar. Verðið fyrir þessar 4 dúkkur er 11.990kr.
Mér var svo misboðið að ég spurði sérstaklega
hvort þetta gæi passað. Já þetta passar alveg,
sko gengið, og krónan er svo lág og bla bla bla.
Ég fór því inn á www.toysrus.com og
leitaði að sambærilegum dúkkum. Ég fann ekki
nákvæmlega sömu týpuna en svona sambærilega.
Ég meina þetta er allt meira og minna sama plastdraslið.
Þar sá ég 6
dúkkur í pakka á $ 9.90
Það þarf enginn að segja mér að þessar
verslanir sem ég linka á, leggi ekki neitt á vöruna
hjá sér. Þetta er komið langt út fyrir öll
velsæmismörk, svo ég mæli með því
að fólk láti okra á sér annars staðar.
Lísa MK
#1622 Ég
kaupi mikið af spínati (fersku) fyrir 2 vikum síðan
keypti ég í bónus stóran poka á 360kr
(merkt Hollt og Gott)
Og fannst alveg nógu dýrt. Í gær ætlaði
ég að kaupan sama pokann halló hann var komin í
442kr. Ég held að það sé nokkuð ljóst
að ég hef ekki efni á að borða
Meira spínat. Annað euro shopper basmati hrísgrjón
hafa farið úr 198 kr á 2 mánuðum í
335 kr . Hvað er í gangi?
Ragnheiður
#1621 Mig langar
að benda á hversu óheyrilega dýrar tannheilsuvörur
eru. Ég hef hvergi séð neinar kannanir, hvorki í
lágvöruverslunum né dýrum apótekum, á
verði þessara vara, en ég get nefnt sem dæmi að
kílóverðið af Sensodynetannkremi kostar litlar 6.600
kr. - og það í Bónus. Það væri
gaman að hringja í einnhvern tannfræðinginn og fá
upplýsingar um hvað meðalmaðurinn notar marga millilítra
af tannkremi á dag, þá viku, þá mánuð
og finna út ársnotkun einnar manneskju.
Þá getur fólk margfaldað með höfðatölu
fjölskyldumeðlima og fundið út þennan útgjaldalið
heimilanna á ársgrundvelli. Svo má fabulera áfram
með tannburstakostnað, munnskol, tannþræði (sem
og viðlíka vörur sem eru fáránlega dýrar).
Því miður er ekki hægt að sniðganga
þessar vörur (maður getur hætt að borða kjöt
og fisk), því tannkrem og tannþræði verður
maður að kaupa hvað sem tautar og raular.
Mig grunar að framleiðslukostnaður þessara vara sé
fáránlega lágur og því undarlegt hve
vörurnar eru dýrar út úr búð. Hvernig
í ósköpunum getur maður stöðvað þetta
okur?
EEG
#1620 Ég
lenti í atburð í gær sem að mér finnst
ég verð að koma frá mér. Málið
er að ég fór í Partýbúðina
í gær þar sem ég er að undirbúa 2ja
ára afmæli dóttur minnar á laugardaginn. Þar
sem ég er ung einstæð móðir þá
er maður mikið þessa dagana að pæla í verði
og gera verðsamanburð og ekki eru nú barnaafmæli ódýr
þegar maður er svona einn að halda þau. Ég fór
í partýbúðina til að kaupa bökunarform
til að búa til Dóru köku og þegar ég
var svo að borga hitti ég kunningja minn og við fórum
að spjalla. ég rétti afgreiðslukonunni því
bara kortið mitt og hún straujaði það.. af einhverjum
ástæðum var ég með það á hreinu
að þetta myndi ekki kosta nema kannski 1500-2000kr. Kvittaði
undir án þess að kíkja þvi að ég
var svo mikið að spjalla (kjánaskapur geri ég mér
alveg grein fyrir). Þegar ég svo er komin út í
bíl fer ég að velta þessu fyrir mér með
verðið og kíki á miðann. þá var
formið mun dýrara en ég gerði ráð fyrir
og fékk alveg sjokk. því ákvað ég
að prufa að fara til baka og ath hvort ég fengi endurgreitt.
ég hef nú gert margar skyndiákvarðanir í
kaupum í gegnum tíðina og veit ég því
að búðir borga ekki tl baka á íslandi. þær
bjóða innleggsnótu en ekki peningana. sérstaklega
ekki ef maður borgar með kortum. það var ekki sama afgreiðslumanneskja
þegar ég kom inn þannig að ég sagði honum
að ég hefði verið að kaupa þetta form en hefði
svo fyllst efa þegar ég kom út í bíl
því að þetta var aðeins dýrara en ég
hefði gert ráð fyrir o´g áður en ég
gat klárað setnignuna greip hann framm í fyrir mér
og sagði "já okei ég skil þig. viltu þá
ekki bara fá endurgreitt?".
Með bros á vör endurgreiddi hann mér í
peningum og sagði að þetta væri nú ekkert mál..
væri alveg nógu dýrt að halda barnaafmæli
og á þessum tímum þá skildi maður
vel að fólk væri að pæla í verðinu.
síðan brosti hann sínu blíðasta og bauð
mér velkomna aftur í búðina.
Ég bara varð að koma þessu frá mér
til að fleiri fái að vita hversu góða þjónustu
ég fékk í partýbúðinni. þetta
hefði ég ekki fengið hvar sem er skal ég segja þér.
Linda
#1619 Þann
22. október sl. kom ég við í Fríhöfninni
(Duty Free Store) á Keflavíkurflugvelli á leið
minni til útlanda. Fjölskyldan sem ég heimsótti
er hrifið af íslensku sælgæti og keypti ég
því Nóa Síríus Gullmola, sem kostuðu
kr. 749 (sjöhundruðfjörutíuogníu krónur).
Þegar ég kom heim aftur sá ég að samskonar
Nóa Síríus Gullmolar kosta kr. 598 í Bónus
og kr. 599 í Króunni. Mér finnst kr. 150/151
mismunur allt of mikill, hélt að Fríhöfnin væri
ódýrari en verslanir í bænum. Ég keypti
einnig Nóa Kropp Bucket á kr. 599 og Nóa Rúsínur
600 gr. á kr. 399, en hef ekki kannað þau verð í
Bónus eða Krónunni.
Sigríður
(25.11.08):
#1618 Eftir kröftugan
fund með ráðamönnum þjóðarinnar í
kvöld þá kom ég við á Aktu taktu
á Sæbrautinni og ætlaði að kaupa mér
Maarud snakk - salt og pipar. Sá sem afgreiddi mig sagði skömmustulegur
,,990 kr" þegar hann rétti mér pokann. Er þetta
brandari? Ég bara spyr.
Eygerður Margrétardóttir.
#1617 Toys 'r us
eru búnir að hækka verðin gígantískt.
Hér eru 2 verðdæmi:
Baby Born dúkka með "grunn-kitti":
Toys 'r us: tæpar 10.000 kr.
Hagkaup: tæpar 5.000 kr.
Dótakassinn: tæpar 4.200 kr.
Baby Born hestakerra:
Toys 'r us: tæpar 13.000 kr.
Hagkaup: tæpar 5.400 kr.
Ég gæti talið lengi áfram. Dúkkuvagnarnir
eru mikið dýrari hjá Toys 'r us... og bara allt dót
sýndist mér! Hvet fólk til að sniðganga Toys
'r us. Því miður er samkeppnin orðin lítil
en það er þó fínt úrval í t.d.
Hagkaup og Dórakassanum (nýkomin til Rvk og er á Skólavörðustíg).
Heiðrún Sig.
#1616 Kíktu
á matseðilinn hjá Pizza Hut. Margarita kostar
nánast 3000 kall
og dýrasta Pizzan þeirra kostar 5170.
Ef það er borðað á staðnum kostar dýrasta
pizzan yfir 6000 kall, bara
pizzan og ekkert annað.
Þetta er alveg fáránlegt. Mig grunar reyndar að
þeir séu svona dýrir
út af staðsetningunni hjá Hilton, þar eru náttúrulega
bara ríkisbubbar
sem gista þar og munar ekkert um að borga svona verð
fyrir eina pizzu.
Ómar
#1615 Ég
má til með að láta vita af því að
ég keypti 500 gr af rækju frá Eldey... það
stendur stórum stöfum framan á pokanum 500 GRÖMM….STÓR
ELDEYJARRÆKJA …Nýfryst, skelflett og íshúðuð.
En þegar ég er búin að afþýða
rækjuna stendur eftir um 300 grömm. og fyrir þessi 300
gr. borgaði ég 549 krónur. Þetta er bara okur,
að borga 219 krónur fyrir vatnið.
Hulda Grímsdóttir
#1614 Mig
langar að senda inn kvörtun vegna
viðskiptahátta Icelandair. Þannig
er að ég hef nýtt
mér talsvert þá einokunarþjónustu
sem þeir bjóða upp á
sl. hálft ár á flugleiðinni
Reykjavík – Osló vegna
náms míns hér erlendis.
Á þessum tíma hef ég
fylgst með þessari ,,glæpastarfssemi”
þeirra og á ekki orð. Ég
get nefnt sem dæmi
að nú vantar mig flug bara
aðra leiðina Osló - Reykjavík í
Desember, til þess að taka þátt
í gleði ljóss og
friðar með löndum mínum.
Á níu daga tímabili kostar
þessi flugferð 84.120 kr. alla dagana.
Nú ef ég athuga flugferð
fram og til baka Osló – Reykjavík
( 16. desember heim og 12. janúar út)
kostar
flugið 37.910 kr. Þetta þýðir,
að það er hagstæðara fyrir
mig að kaupa flug fram og til
baka þó ég þurfi
ekki flugið til baka. Ekki nóg
með það að ég get
keypt tvö svona flug og átt
8.300 kr í afgang.
Því er það ljóst
á könnunum mínum, að ef
fólk þarf að kaupa flug
aðra leiðina þá hækka þeir
sætavalið
mjög mikið, í þessu tilviki
glæpsamlega mikið. Það er greinilega
nóg af sætum eftir í
vélinni, annars
myndu þeir ekki bjóða upp
á svona ,,ódýr“ sæti fyrir
þá sem kaupa flug fram og
til baka.
Er maður skoðar flug með
Iceland ?express þá hækka þeir
ekki verðið, kaupi maður bara aðra
leiðina.
Sem dæmi rukka þeir tæplega
30.000 kr. fyrir flug frá Kaupmannahöfn
til Reykjavíkur þann 16.
desember. Hægt er að fá
ódýrt flug héðan frá
Osló til Köben á 8.000
kr.
Þá er staðan sú að
það er hagstæðara fyrir mig
að fljúga til Kaupmannahafnar og
þaðan til Íslands en að
versla við Icelandair. Enda er það
ekki beint aðlaðandi fyrir almenning
að láta koma svona fram við
sig
og versla við Icalandair.
Þá er rétt að vara
fólk við því að kaupa
miða í fyrstu atrennu, því
flugverð þeirra flakkar um þúsundir
króna og stundum á annan
tug þúsunda króna á
einum sólahring. Þetta þekkist
ekki hjá flugfélögum
erlendis s.s Norwegian sem að höfðu
sömu verð á margra vikna
tímabili allt til brottfaradags þegar
ég
þurfti á þeirra þjónstu
að halda.
Ekki er hægt að fela sig
bak við það og segja að
engin aðsókn hafi verið í
vélina, heldur varð hún full
á
endanum, en verðlagningin var til fyrirmyndar
og þurfti maður ekki að hafa
áhyggjur að vera ,,rændur”
þó að maður myndi kaupa
miðann vikur fyrir brottför.
Þá er þetta ekkert einsdæmi
sem þeir geta afsaka sig á
bak við núna. Á haustdögum
kannaði ég aðrar
flugleiðir Icelandair til borga í
Evrópu og sömu sögu var
að segja sem ég hef hér
áður sagt frá, ætlaði
maður að panta flug aðeins
aðra leiðina.
Mér þykir framkoma þessa
gamla flugfélags sorgleg og er félaginu
alls ekki til framdráttar, þeir gera
lítið
úr viðskiptavinum sínum sem
munar flestum um hverja krónu. Þeir
nýta sér einokunaraðstöðu
(þó látið
sé líta út fyrir annað
með flugi SAS til Íslands, sem
greinilega er baktrygging Icelandair!) sína
sitt sem er
til skammar.
Þetta er félag sem megnið
af íslensku þjóðinni hefur
stutt í gegnum áratugi og hefur
því miður oftast
neyðst til þess, félag sem
hefur skilað miljarða hagnaði á
sl. ársfjórðungum og er ljóst
að viðskiptavinir
þess fá ekki að finna
fyrir þessum hagnaði.
Ég get nefnt sem dæmi um
hrakandi þjónustu Icelandair, að síðdegisflug
félagsins, þann 23. nóvember til
Osló frá Íslandi beið
mikinn hnekki í mínum huga
og flest allra farþega. Þjónustufólkið
var undirmannað
(held þrjár flugfreyjur) sem náðu
ekki að bjóða öllum að
kaupa sér að borða áður
en vélin lenti á
Gardemoen og var enn verið að
selja veitingar þegar 20 mín
voru í lendingu. Þetta er hluti
af
sparnaðaraðgerðum þeirra að
bjóða ekki lengur upp á
mat, heldur að bjóða upp á
uppsprengt verð af
vörum framleiddum af Sóma.
Tími til sölu á varningi
(snyrtivörum o.þ.h. var enginn). Hér
er á ferð félag
sem er á miklum villigötum
og væri einhver sönn samkeppni
á þessari flugleið, myndu þeira
brátt fljúga á
milli með tómar vélar vegna
þess að viðskiptavinirnir væru
farnir annað. En það er nú
einu sinni svo að
almenningur hefur ekkert val og því
komast þeir upp með svona framkomu
án þess að biðja afsökunar.
Hér er þó ekki hægt
að sakast við þá sem
hafa þjónustað mann um borð
í þessum flugferðum, enda gerir
starfsfólkið sitt besta þó
svo að það geti verið erfitt.
Icelandair hefur góða starfsmenn sem
eru til
fyrirmyndar, en stjórnendur þess mega
skammast sín.
Hér að neðan má sjá
þau verð sem koma upp þegar
maður athugar flug með félagi
“glæpa” á næstu
vikum. Bæði á flugleiðinni
Osló – Rvk & Frankfurt – Rvk.
Virðingarfyllst,
Helgi Einarsson – Háskólanemi
Einnig sett fram á www.helgie.wordpress.com
#1613 Ég
keypti venjulegt Cheerios í TwinPack (992 g) í Krónunni
í gær en brá heldur mikið þegar ég
sá hvað hann kostaði, 829 krónur. Ég
vissi að morgunkorn hafði hækkað í verði en
fannst þetta heldur gróft svo ég fór í
Bónus og athugaði verðið þar. Í Bónus
var ekki til Twin Pack en þar kostar stór Cheerios pakki (518
g) 329 kr. Þetta þýðir að ef ég
hefði keypt tvo 518 g. pakka í Bónus hefði ég
fengið 1036 g af Cheerios fyrir aðeins 658 kr. Ég var því
illilega rænd í Krónunni í þetta skiptið.
Ég vona að fólk sé betur vakandi yfir verðmun
á milli svokallaðra lágvöruverðsverslana en
ég því það getur munað talsverðu.
Ég verð allavega á betur á varðbergi í
framtíðinni.
Sandra Jónsdóttir
(23.11.08):
#1612 Hérna
er dæmi um fáránlega hækkun. Ég hef verið
að velta því fyrir mér að kaupa mér
nýjan gsm síma og mér leist best á tilboð
hjá NOVA þar sem þeir auglýstu Sony-Ericsson
W890i á 17.900 kr. í útborgun og svo 2.000 kr. á
mánuði í 12 mánuði og þar átti
að fylgja inneign uppá 2.000 kr .á mán.
Ég skoða þetta síðast á föstudeginum
21. nóv. Ég fer svo í NOVA á laugardeginum
22. nóv. þá eru þeir búnir að hækka
útborgunina í 29.900.kr og áfram 2000.kr á
mán. og þessi 2000.kr. inneign á mánuði.Þegar
ég spyr afgreiðslustelpuna útí þessa hækkun
segir hún mér að núna geti ég farið
6 sinnum í bíó!!!!!!!!!!!!! því þau
séu búin að bæta bíó korti við
þetta....heildar verð símans er því orðið
53.900 kr. á meðan að sami sími kostar hjá
Vodafone 44.900kr. Og hjá Símanum kostar hann 41.900.kr.
Þetta þykir mér heldur mikil hækkun á útborgun,
úr 17.900 í 29.900 og ég fæ að fara 6 sinnum
"frítt" í bíó fyrir þessa hækkun!!!!
Atli Freyr Ingólfsson
#1611 Ég
var að leita að litlu mótorhjóli (rafmagns) í
jólagjöf handa 2ja ára ömmustrák, fór
í leikfangabúðir þar sem þau kostuðu
frá 11.500 og uppí ca 20.000, og satt að segja voru þau
ódýrustu óttalegt drasl, þá rakst ég
á auglýsingu í fréttablaðinu: www.netlagerinn.is
og þar fann ég þessi flottu og vönduðu hjól
á 8.500 og 10.000.
Sjöfn
#1610 Ég
tók olíu í dag hjá OB á Selfossi sem
varla er í frásögur færandi nema að þar
kostar lítrinn 170,6 og svo þegar ég sá lítraverðið
hjá Olís á Hellu þá var það
182,4 mismunur upp á 11,8 krónur sem mér finnst allt
of mikill, einhver gæti sagt að það væri meira
vöruúrval á Hellu en það er ekki hægt
að hlusta á þau rök því að hjá
Olís á Selfossi var lítrinn á um 177 krónur.
Brynjar
#1609 Fyrir nokkru
fórum við fjölskyldan og keyptum okkur ís í
kaffiteríuni
í Perlunni, allt í góðu með það
en eftir ísinn var ég mjög þyrstur og ákvað
að fá mér ískalda Pepsi Max í flösku
0,25 lítra. Flaskan kostaði 330 krónur.
#1608 Sófasett
í Húsgagnahöllinni sem er búið að
vera til í búðinni síðan í byrjun sept
hefur hækkað úr 250 þús í 350
þúsund.
Sófinn er keyptur inn fyrir mörgum mánuðum en
seldur í dag á núverandi gengi við núverandi
aðstæður. Sófi sem sennilega er með 300%
álagningu fyrir. Rökin hjá verslunarstjóra
voru. „Við eru að verja okkur gegn genginu" „Allir
þurfa að lifa" Af hverju keyptir þú bara ekki sófann
fyrr" Þetta finnst mér gróft. Ég
sagðist vera kominn til að kaupa hann en gekk út.
Finnst honum líklegt að sófinn seljist frekar núna
ef hann seldist ekki í september og október á mun
lægra verði. Á sama tíma er verslun eins og Valhúsgögn
með 25% afslátt til áramóta. Þar sá
ég sófa á á sama verði og með afslætti
að auki. Hvar haldið þið að ég muni
kaupa sófann sem mig vantar. Valhúsgögn. Tek hattin
ofan fyrir þeim en ég fer ekki í Húsgagnahöllina
aftur.
Gunnlaugur
(+ Ótrúlegt framhald okursögunnar. Sófasettið
sem skyndilega hækkaði um 100.000 krónur er nú
auglýst með 30% afslætti í Húsgagnahöllinni.
Ég var þarna á Sunnudag og verslunarstjórinn
talaði um að vernda sig gegn genginu osfrv og þess vegan
hafi sófinn hækkað. Í dag kom bæklingur
inn um lúguna með þessu „frábæra" tilboði.
Ég ætla ekki að fullyrða en ég held að
sófasettið hafi aldrei verið á þessu verði.
Þ.e. 350.000 kr. Þeir hækkuðu það
í u.þ.b. 2 vikur ef mér reiknast rétt og auglýsa
það núna með afslætti. Á sunnudag
vildi verslunarstjórinn ekkert gera fyrir mig þegar ég
kom til að kaupa sófann á 250.000 kr en auglýsir
svo þremur dögum síðar afslátt. Ég
hefði keypt sófann á lægra verðinu........Ég
tek fram að í gær keypti ég sófa af svipaðri
gerð í Valhúsgögnum. Þar fékk
ég góða þjónustu.
Gunnlaugur)
#1607 Ég
var í Kringlunni í fyrradag og ákvað að koma
við í Kúnígúnd til að kaupa
mér diska inn í Rosendahl settið mitt. Fékk vægast
sagt áfall þegar ég kíkti á verðið
- pakki sem kostaði rúmlega 3.000 fyrir 2 vikum síðan
var kominn upp í 4.790!! Ég spurði afgreiðslukonuna
hvort að þetta væri rétt og hún sagði
að þetta væri allstaðar að hækka svona mikið,
og ætti eftir að hækka meira.
Ég var nú ekki alveg að trúa henni og fór
því í Epal þar
sem ég hef verslað mikið og þar fann ég diskana
mína á 3.350 - sama verði og síðustu vikur.
Ég spurði þar hvort þeir væru eitthvað
að fara að hækka og þar var mér sagt að
þeir væru að reyna eins og þeir mögulega gætu
til að hækka ekki og hún vissi ekki um hækkun á
næstunni því að þau eiga svo góðan
lager hérna heima.
Það verða allavegana engar jólagjafir keyptar
í Kúnígúnd þessi jólin.....!!!
Ísabella
(22.11.08):
#1606 Ég
bý á suðursvæði Verstfjarða þar sem
enginn Bónusverslun er svo ég fór til Ísafjarðar
fyrir tveimum vikum í verslunarferð í Bónus og
þar er allt mikið ódýrara en hér!.Svo var
maðurinn minn að koma að sunnan og fór í Bónus
þar og þá komust við að því að
það er ódýrara í Bónus í Reykjavík
en á Ísafirði t.d. mylluheilhveitibrauð á
Ísafirði 224 kr en í Reykjavík 138 kr (á
suðursvæði Vestfjarða 400 kr) pizzaostur RVK 205 kr en
Ísó 231 kr. ½ ltr rjómi 306 kr í RVK
á Ísafirði 384 kr, svo auglýsa þeir sama
góða verðið um allt land ég get ekki séð
að það standist miðað við þessar tvær
kassakvittanir.
Sólrún
(Nb. Er ekki verið að hækka þetta út
og suður nánast daglega? Það skiptir líklega
máli að kaupa hlutina sama daginn.)
#1605 Ég
kaupi endrum og sinnum parmesanost í ítalska matargerð.
Hingað til hef ég fengið eitt stykki á um kr.
700 í Hagkaup.
Í fyrradag fór ég í Nóatún
við Hringbraut og þar kostaði sama stykkið
tæpar kr. 1.400. Skýring kaupmannanna var sú að
Osta- og smjörsalan
hefði hækkað það um kr. 600! Getur það
verið? OKUR!
Ingunn
#1604 Ég
vil benda þér og öðrum sem ætla þrátt
fyrir gengið að hætta sér til útlanda á
þetta. Síðan www.couchsurfing.com
er einskonar "gistiskiptasíða" þar sem fólk getur
fundið sér gistingu - frítt. Ekki er nauðsynlegt
að bjóða gistingu á móti, þó
auðvitað sé hvatt til þess. Ég hef notað
þessa síðu undanfarin tvö ár með góðum
árangri, því auk þess að spara peninga sem
annars færu í eitthvað okur-hótel/b&b/hostel,
kynnist maður heimamönnum mun betur en annars.
Síðan er auðvitað alltaf gaman
að fá gesti sjálfur.
Tinna
-----
Okur #1403 - 1603 eru hérrrrrrrrrrrrrrrrrrrrnaa.
Veistu um svakalegt okur? Láttu
vita! |