is_gif_nr_00001
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
De rien
02. 06. 2022 - 24. 07. 2022
 
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar De rien eftir Ingibjörgu Sigurjónsdóttur fimmtudaginn 2. júní kl. 17 í Kling & Bang. Á sýningunni stillir Ingibjörg fram þrettán nýjum höggmyndum, teikningum, lágmyndum og rýmisverkum, sem unnin voru sérstaklega fyrir Kling & Bang.

Í tilefni af sýningunni kemur út fyrsta bók Ingibjargar, Heiglar hlakka til heimsendis, sem gefin er út af Tunglinu forlagi.

Þessu lýkur öllu, bara mishratt. Allt eyðist og máist út. Nema það sem skemmist og hverfur snögglega. Mig langar að stöðva tímann, hægja á eyðileggingunni. Ekki glata mér eða þér.

Núllið

á núlli

Þetta kemur alls ekki út á núlli. Eyðingin safnast upp. Litlaus hjúpur af hinu og þessu. Upplituð skel af engu. Upplitað núll.

En þetta ekkert, þetta núll, er samt til. Það er áþreifanlegt. Það er hægt að kveikja á því, brenna það niður. Og þá fyrst mögulega er það orðið ekkert. En ég ætla ekki að gera það. Hah! Ég neita að brenna þetta núll. Það fer vel í hendi. Passar í lófann. Svindlar á kerfinu. Það er upplitað öðru megin. Litirnir eru að mást út. Sá skærbleiki orðinn föl ferskjuslikja, blái reyndar ennþá sterkur, týpískt. Ég hef ekki gætt þess nógu vel. Sólin sem ég elska, dýrka og sakna skemmir allt. Og ég held kokhraust á engu. Það var ekkert.



Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og er styrkt af Myndlistarsjóði.
 
Ingibjörg Sigurjónsdóttir (f. 1985) lauk BA námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2010. Verk hennar eru höggmyndir sem tengjast gjarnan heilabrotum um mannlega tilvist,
listina, endimörk hennar og þanþol. Sýningar Ingibjargar eru innsetningar sem hún vinnur af hárnákvæmni inn í rými. Hún hefur m.a. haldið sýningar í Skaftfelli og Listasafni Reykjavíkur, auk samsýninga í Gerðarsafni; 3 134, Aþenu; GES-2, Moskvu; Dimensions Variable, Miami. Samhliða því að þróa sitt sérstæða tungumál sem myndlistarmaður hefur hún unnið í samstarfi með öðrum listamönnum, sýningarstýrt fjölda sýninga og skrifað um myndlist. Ingibjörg býr og starfar í Reykjavík.
 
 
 
 
Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík kob@this.is