kristin_helga
Ingibjörg Magnadóttir / kjallari-basement: Kristín Helga Káradóttir
Obsession (Spreyjar) / kjallari-basement: Hérna niðri / Down here
28. 01. 2006 - 19. 02. 2006
 
Opnun laugardaginn 28.janúar klukkan 17

Ingibjörg Magnadóttir
Obsession (Spreyjar)

Upphaf:
Beðið fyrir fortíð og framtíð.
(Imma biður fyrir framtíð, Stína fyrir fortíð)

H.T.
Obsession, (Spreyjar)
Óvissan er frelsi frá hinu liðna, frá hinu þekkta sem er fangelsi gert af fortíð.
Leit að öryggi er að vera háður hinu þekkta, það þekkta er fortíð okkar.
Addict, (spreyjar)
Must, (spreyjar)
Ég gæti móðgað þig og ég gæti svívirt þig og þú gætir kosið að móðgast alls ekki.
Ég gæti hrósað þér og þú gætir kosið það að taka ekki mark á orðum mínum.
Þegar ég var ástfangin notaði ég Roma (spreyjar)
Endalaust; eitthvað sem hefur engan endi né tekur enda.
Með mér er vera frá árinu 21.894, ég fyllist auðmýktar og spyr hana:
Er leiðinlegt eðlilegt og jafnvel skemmtilegt?

F.V.
Sjáið hið óskiljanlega ólögulega nálgast yfir flötinn
talandi lík mintugræn sem benda
blátt fílshöfuð margarma kona verður fílshöfuð
þið sjáið það ekki grátið í felum
felustaðurinn stór kista úr viði sem flæðir
þar oní sag úr biblíusögu

H.T.
Ójá einmitt! Enginn getur þvingað grasið til vaxa. En er það ekki rétt að sjö ókunnuga menn þarf kona til að jafna sig á einum?

F.V
Logandi kertin á kaf í holurnar
afmynduð eruð þið fallegust í framan
lokið augunum hugsið; gull og hestar
hugsið; logandi höfuð hugsið;
auðnin verður húðlit verður hold
handan holdsins uppruninn
slímið sem þið urðuð úr
aldrei óttast slímið upprunann formleysuna hugsið;
þið berið kyndil og níðstöng þið berið
höfuð á stjaka.

H.T.
Já pussan! Vitið sem er í náttúrunni starfar án áreynslu, það er til lögmál um hina minnstu áreynslu, láttu hlutina gerast án þess að gera neitt, lögmálið er að gera minna og koma meiru í verk. Er núna tími er núna næði? Er núna tími með ekta gæði?

F.V.
Nei þið raðið litlum borðum um hægindastóla
um hold vafið inní mjúkt efni
ekkert ykkar vill meir
ekkert ykkar vill meir
ekkert ykkar þarf meir
en samt troðið þið

veljið frekar svartan díl af sjónhimnu
finnið að hann er holur, skríðið
þið eruð fjórfætt dýr, loðin, skríðið
með tóbaksklúta bundna um höfuðin
einsog þvottakerlingar
einsog gettósvertingjar

setjið ljósmynd af bláum gára á altarið
setjið ljósmynd af Dali á altarið
setjið blýantsteikningu af ástföngnu pari, nöktu, á altarið

steyptur hestur á eilífu stökki

leitið lúsa í heilögu apahöfði
kúlur í klofin á konum

H.T. Andrés Önd, Þvílík Önd.
mótmælið:
mótmælið jafnvægi hófi
mótmælið grátandi heima hjá ykkur
og stingið hönd í slím
skærgrænt úr gerviefnum
mótmælið talið afturábak á innsogi
mótmælið hæðni lífsvisku skynsemi
hatið spúið eitri inní springið
mótmælið;

berið gasdunk að boru útglenntri
sóðalegri jaskaðri merkingarlausri
og bíðið eftir eldi og bíðið

það er skælt hérna inni
skakkt og rúmar ekkert

sjáið sloppa ykkar slitna
með brúnum röndum
sjáið sloppa ykkar slitna
gúlpast um sekkina.

H.T
Kraftar sem eru hvorki í fortíð né framtíð, hljóð, hiti, rafmagn, segulafl, þessir kraftar einfaldlega eru.
 
Texti um Kristínu Helgu Káradóttur á íslensku á leiðinni, sjá ensku
 
uti gluggi1 yfirlit2 yfirlit3 ilmur1 ilmur2 ilmur3 ilmvatn you video1 video2 running1 runningfast cloud flodkristin
 
 
 
Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík kob@this.is